Ferill 40. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 142  —  40. mál.




Svar



iðnaðarráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur, Þuríðar Backman og Árna Steinars Jóhannssonar um raforkusölu til álbræðslu á Reyðarfirði.

     1.      Hver er samningsaðili við Landsvirkjun í viðræðum um kaup á raforku til hugsanlegrar álbræðslu á Reyðarfirði?
    Væntanlegt álfyrirtæki þegar það hefur verið stofnað.

     2.      Hvernig stendur undirbúningur að slíkum samningi, út frá hvaða raforkuverði (kr./kWh) er gengið og hver er ráðgerð tenging raforkuverðs við vísitölu álverðs á London Metal Exchange?
    Landsvirkjun hefur til athugunar hvaða orkuverð gæti talist hæfilegt í slíkum samningum en samningaviðræður eru ekki hafnar. Ljóst er að Landsvirkjun mun í samræmi við gildandi lög gera kröfur um orkuverð sem tryggi að ekki verði hætta á að samningurinn leiði til þess að almennir rafmagnsnotendur beri kostnað af. Enn fremur má ljóst vera að samningurinn þarf að standast kröfur eigenda um arðsemi fyrirtækisins.

     3.      Frá hvaða virkjunum er ætlunin að afla raforku til fyrsta áfanga álbræðslunnar svo og til síðari áfanga hennar uns náð yrði 480 þúsund tonna framleiðslugetu á ári? Hversu mikil orka (GWh/ári) er ráðgert að komi frá hverri virkjun?
    Reiknað er með að raforka til fyrsta áfanga álversins (120.000 tonn á ári) fáist að stærstum hluta frá Fljótsdalsvirkjun (um 1.400 GW-stundir á ári). Auk orku frá Fljótsdalsvirkjun þarf um 300 GW-stundir á ári. Ekki hefur verið ákveðið hvaðan sú orka kemur, þar kemur meðal annars til greina að virkja í Bjarnarflagi (um 320 GW-stundir á ári) en Alþingi hefur heimilað iðnaðarráðherra að veita Landsvirkjun leyfi fyrir virkjuninni að undangengnu mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 63/1993, um mat á umhverfisáhrifum, og að uppfylltum skilyrðum laga nr. 36/1974, um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu. Landsvirkjun eða aðrir aðilar hafa ekki heimildir Alþingis til að reisa aðrar virkjanir sem nýst gætu ef álverið verður stækkað.

     4.      Hvaða áhrif hefur óvissa um framtíðarstöðu Landsvirkjunar vegna breyttra laga, eignaraðildar og lögfestingar tilskipunar Evrópusambandsins um raforkumarkað á gerð raforkusölusamninga til stóriðju framvegis, þar á meðal á samninga og skuldbindingar um orkuafhendingu til álbræðslu á Reyðarfirði?
    Landsvirkjun starfar samkvæmt núverandi lögum og gerir það þangað til þeim verður breytt.

     5.      Hvernig getur ríkisstjórnin látið kanna „möguleika á því að gera Noral-álfélaginu kleift að kaupa rafmagn frá fyrirhugaðri Kárahnjúkavirkjun á samkeppnishæfu orkuverði er ákvarðast af áætlun um kostnað við fjárfestinguna“ (sbr. yfirlýsingu um Noral-verkefnið frá 29. júní 1999) og gefið marktækar yfirlýsingar um orkuafhendingu og orkuverð þegar hvorki er fengin heimild Alþingis fyrir slíkri virkjun né hefur farið fram mat á umhverfisáhrifum slíks mannvirkis?
    Eins og fram kemur í yfirlýsingu þeirri sem undirrituð var á Hallormsstað 29. júní sl. og vitnað er til í spurningunni samþykkti ríkisstjórnin að kanna möguleika á því að gera álfélaginu kleift að kaupa rafmagn frá virkjun sem hugsanlega kann að rísa við Kárahnúka á orkuverði sem er samkeppnishæft og tekur mið af áætlunum um virkjunarkostnað. Þetta getur ríkisstjórnin látið kanna óháð því hvort Alþingi hefur samþykkt lög til að heimila virkjunina. Jafnframt er ljóst að ríkisstjórnin getur ekki heimilað virkjun í ánni og gefið út virkjunarleyfi án fulltingis Alþingis og að undangengnu mati á umhverfisáhrifum virkjunarinnar, sbr. lög nr. 63/1993, um mat á umhverfisáhrifum.