Ferill 126. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 146  —  126. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um úthlutun listamannalauna.

Frá Hjálmari Árnasyni.



     1.      Hvaða listamenn njóta launa úr launasjóðum listamanna?
     2.      Hvernig skiptast þeir eftir listgreinum?
     3.      Hvaða listamönnum var synjað um laun úr sjóðunum við síðustu úthlutun?
     4.      Hvernig skiptast þeir eftir listgreinum?
     5.      Hvaða listamenn bættust í hópinn við síðustu úthlutun?
     6.      Hversu margir úr hópnum búa utan höfuðborgarsvæðisins?
     7.      Hvaða listamenn hafa hlotið laun úr sjóðunum í þrjú ár eða lengur?


Skriflegt svar óskast.