Ferill 128. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 148  —  128. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um gjald fyrir ökupróf, ökuskírteini og vegabréf.

Frá Guðmundi Árna Stefánssyni.



     1.      Hverjar eru heildartekjur ríkissjóðs af prófgjaldi fyrir ökupróf og hver er útlagður kostnaður hins opinbera við sömu próf, sundurliðað eftir flokkum prófa?
     2.      Telur ráðherra eðlilegt að prófgjöld séu greidd tvisvar að fullu þegar verkleg próf eru í tveimur hlutum, sbr. hópbifreiðapróf?
     3.      Telur ráðherra sanngjarnt að full prófgjöld séu lögð á við endurtekningarpróf hafi próftaki ekki staðist hið fyrsta?
     4.      Hverjar eru tekjur ríkissjóðs af útgáfu ökuskírteina og hver eru útgjöld hans af sömu orsökum, sundurliðað eftir helstu tekju- og gjaldstofnum?
     5.      Er eðlilegt að tvígreitt sé fyrir ökuskírteini eins og raunin mun vera þegar einstaklingur nemur til aksturs vörubifreiðar og fer í kjölfarið í nám og próf til aksturs með eftirvagn?
     6.      Hverjar eru heildartekjur ríkissjóðs af útgáfu vegabréfa og hver eru útgjöldin að sama skapi, sundurliðað eftir helstu tekju- og gjaldstofnum?
     7.      Hverjar eru viðbótartekjur ríkissjóðs af aukagjaldi fyrir útgáfu vegabréfa þegar svokallaðrar hraðafgreiðslu er óskað (innan 10 virkra daga) og hver eru sundurliðuð viðbótarútgjöld ríkissjóðs af sömu ástæðum?
     8.      Hver er ástæða þess að útgáfa vegabréfa tekur meira en 10 virka daga? Er áformað að stytta þennan biðtíma án þess að aukagjald komi til?


Skriflegt svar óskast.