Ferill 129. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 149  —  129. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um sláturkostnað.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Hver hefur verið árleg dilkakjötsframleiðsla frá árinu 1989?
     2.      Hver hefur verið sláturkostnaður, þ.m.t. flutningskostnaður, á hvert kíló á þessum árum, framreiknaður til núgildandi verðlags?
     3.      Hversu margir sláturleyfishafar hafa verið starfandi á þessum árum?


Skriflegt svar óskast.