Ferill 131. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 151 — 131. mál.
Fyrirspurn
til umhverfisráðherra um gjald af ferðamönnum á friðlýstum svæðum.
Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.
Hvaða hugmyndir liggja að baki aðgangseyri að friðlýstum svæðum, sbr. lið 14-205 (Náttúruvernd ríkisins) í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2000?
Um hvaða svæði er að ræða?
Hvernig er gert ráð fyrir að innheimtan fari fram?
Hver er ráðgerður kostnaður við framkvæmdina?