Ferill 140. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 161 — 140. mál.
Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um íslenskar þjóðargersemar erlendis.
Frá Jóni Bjarnasyni.
1. Hvað er vitað um skráningu íslenskra þjóðargersema á erlendri grundu, svo sem kirkjugripa, forngripa og annarra dýrgripa sem hafa sögulegt og þjóðmenningarlegt gildi fyrir Íslendinga, og hvernig er háttað vörslu þeirra og aðbúnaði?
2. Hefur menntamálaráðuneytið eða ríkisstjórnin uppi hugmyndir eða áætlanir um að leita eftir samningum við viðkomandi erlend stjórnvöld, stofnanir eða einstaklinga sem miða að því að endurheimta umrædda dýrgripi?