Ferill 41. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 181 — 41. mál.
Svar
fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um fjármagnstekjuskatt.
1. Hve miklar voru heildartekjur ríkissjóðs af fjármagnstekjuskatti við álagningu skatta árin 1998 og 1999 (tekjuárin 1997 og 1998) og hvernig skiptist hann milli bankainnstæðna, verðbréfa, arðs, útistandandi skulda og annarra vaxtatekna?
Álagður fjármagnstekjuskattur árið 1999 nam 1.510 m.kr. vegna tekna á árinu 1998. Persónuafsláttur sem nýttist á móti fjármagnstekjuskatti nam 48 m.kr. þannig að tekjur ríkissjóðs af skattinum voru 1.462 m.kr. Samsvarandi tölur fyrir árið 1998 eru birtar í meðfylgjandi yfirliti. Þar kemur einnig fram skipting eftir tegund fjármagnstekna bæði árin.
| Álagningarár | 1999 | 1998 |
|
Heildartekjur af fjármagnstekjuskatti
|
1.510 | 1.401 |
|
Persónufrádráttur á móti fjármagnstekjuskatti
|
48 | 85 |
|
Tekjur af fjármagnstekjuskatti
|
1.462 | 1.316 |
|
Arður af hlutabréfum og vextir af stofnsjóðsinneign
|
404 | 422 |
|
Hagnaður af sölu hlutabréfa
|
328 | 312 |
|
Annar söluhagnaður
|
36 | 42 |
|
Vextir af bankainnstæðum
|
318 | 302 |
|
Vextir af eignarskattsfrjálsum verðbréfum
|
91 | 42 |
|
Vextir af öðrum skuldum og útistandandi skuldum
|
138 | 101 |
|
Leigutekjur
|
184 | 150 |
|
Handreiknaðir
|
12 | 28 |
| Samtals: | 1.510 | 1.401 |
2. Hve miklar vaxtatekjur voru taldar fram á skattframtölum við álagningu skatta 1999 (tekjuárið 1998) og hvernig skiptust þær eftir verðbréfum og inneignum hjá innlánsstofnunum?
Samkvæmt skattframtölum einstaklinga árið 1999 vegna tekna á árinu 1998 voru framtaldar fjármagnstekjur 5.466 m.kr. og skiptust þær þannig:
| Álagningarár | 1999 |
| Vextir af bankainnstæðum
|
3.179 |
| Vextir af útistandandi skuldum/verðbréfum
|
1.376 |
| Vextir skattfrjálsum verðbréfum
|
911 |
| Samtals: | 5.466 |
3. Hve mikill var hagnaður af sölu hlutabréfa samkvæmt álagningu skatta 1999 (tekjuárið 1998)?
Samkvæmt framtölum ársins 1999 var hagnaður einstaklinga af sölu hlutabréfa 3.520 m.kr. tekjuárið 1998.
4. Hve hár var arður af hlutabréfum og skattlagning hans við álagningu skatta árið 1998 annars vegar og árið 1999 hins vegar (tekjuárin 1997 og 1998)?
Á árinu 1998 var arður einstaklinga af hlutabréfum og stofnsjóðsinneign 4.038 m.kr. og nam skattlagning hans 404 m.kr. af þeim tekjum en árið 1997 var arðurinn 4.224 m.kr. og skatturinn 422 m.kr. Ekki er ljóst hversu stór hluti af persónuafslætti nýttist á móti þessari álagningu.
5. Hverjar hefðu skatttekjur ríkissjóðs orðið af arði af hlutabréfum við álagningu skatta fyrir árið 1999 (tekjuárið 1998) ef skatthlutfallið hefði verið það sama og fyrir upptöku fjármagnstekjuskatts?
Þar sem reglur um meðferð og skattlagningu arðs hafa breyst verulega frá því sem var fyrir upptöku fjármagnstekjuskatts er ekki unnt að reikna út með neinni vissu hverjar tekjur ríkissjóðs af arði af hlutabréfum hefðu orðið samkvæmt eldri reglum. Hér munar mestu að breyting á lögum um skattlagningu fjármagnstekna virðist hafa haft veruleg áhrif á ráðstöfun eignatekna. Eru þau áhrif mun meiri en reiknað var með eins og sést á miklum mun meiri tekjum samkvæmt ríkisreikningi 1998 en reiknað var með. Til viðbótar kemur þar hvoru tveggja til að útborgaður arður er ekki lengur frádráttarbær hjá lögaðilum og að ekki liggja fyrir upplýsingar um það hvernig frádráttarbær arður einstaklinga samkvæmt eldri reglum mundi nýtast þeim í dag. Loks er ekki ljóst hvaða áhrif nýting persónuafsláttar hefur á útreikning af þessu tagi.