Ferill 28. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 182 — 28. mál.
Svar
fjármálaráðherra við fyrirspurn Sighvats Björgvinssonar um heildarskuldastöðu ríkissjóðs.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver var árleg heildarskuldastaða ríkissjóðs árin 1991–98 á verðlagi hvers árs og á föstu verðlagi til samanburðar?
Meðfylgjandi er yfirlit sem Ríkisbókhald hefur tekið saman um skuldir A-hluta ríkissjóðs árin 1991–98. Það sýnir langtímaskuldir og skammtímaskuldir ríkissjóðs samkvæmt ríkisreikningi hvers árs og sömu tölur uppfærðar til verðlags í lok árs 1998 samkvæmt vísitölu neysluverðs. Í ljós kemur að skuldirnar á föstu verðlagi jukust fram á árið 1997 en hafa lækkað umtalsvert eftir það.
Jafnframt er í yfirliti Ríkisbókhalds sýnd þróun lífeyrisskuldbindinga A-hluta ríkissjóðs á sama tímabili. Þær skuldbindingar breytast í samræmi við þróun dagvinnulauna ríkisstarfsmanna. Hækkuðu þær verulega á árinu 1998 en þá voru gerðir svonefndir „aðlögunarsamningar“ við fjölmarga hópa ríkisstarfsmanna er fólu m.a. í sér að ýmiss konar yfirborganir voru færðar inn í dagvinnulaun. Breytingin kom öll inn á ríkisreikning 1998 þótt hún væri vegna réttinda sem starfsmenn höfðu áunnið sér á fyrri áratugum.
| Stöðutölur í árslok | 1991 | 1992 | 1993 | 1994 | 1995 | 1996 | 1997 | 1998 |
| Í millj. kr. á verðlagi í lok hvers árs: | ||||||||
|
Langtímaskuldir, innlend lán
|
60.295 | 64.104 | 75.302 | 84.935 | 88.333 | 90.446 | 102.243 | 104.895 |
|
Langtímaskuldir, erlend lán
|
67.953 | 87.273 | 102.305 | 113.633 | 127.261 | 132.218 | 126.628 | 117.318 |
|
Ríkisvíxlar
|
8.244 | 12.545 | 17.381 | 14.630 | 16.399 | 15.810 | 12.296 | 15.209 |
|
Ýmsar skammtímaskuldir
|
19.681 | 14.921 | 15.659 | 15.787 | 17.384 | 24.855 | 30.908 | 18.354 |
|
Langtíma- og skammtímaskuldir
|
156.173 | 178.843 | 210.647 | 228.985 | 249.377 | 263.329 | 272.075 | 255.776 |
|
Lífeyrisskuldbindingar
|
55.015 | 57.771 | 60.143 | 64.060 | 81.399 | 90.394 | 94.918 | 125.145 |
| Í millj. kr. á föstu verðlagi í árslok 1998: | ||||||||
|
Langtímaskuldir, innlend lán
|
69.313 | 72.601 | 81.418 | 91.350 | 93.150 | 93.447 | 103.539 | 104.895 |
|
Langtímaskuldir, erlend lán
|
78.116 | 98.841 | 110.615 | 122.215 | 134.201 | 136.605 | 128.234 | 117.318 |
|
Ríkisvíxlar
|
9.477 | 14.208 | 18.793 | 15.735 | 17.293 | 16.335 | 12.452 | 15.209 |
|
Ýmsar skammtímaskuldir
|
22.625 | 16.899 | 16.931 | 16.979 | 18.332 | 25.680 | 31.300 | 18.354 |
|
Langtíma- og skammtímaskuldir
|
179.531 | 202.549 | 227.757 | 246.280 | 262.977 | 272.067 | 275.525 | 255.776 |
|
Lífeyrisskuldbindingar
|
63.243 | 65.429 | 65.028 | 68.898 | 85.838 | 93.394 | 96.121 | 125.145 |