Ferill 165. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 191  —  165. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um erlenda fjárfestingu.

Frá Svanfríði Jónasdóttur.



     1.      Hve miklu námu beinar erlendar fjárfestingar í árslok 1998 eftir atvinnugreinum og hvaða breytingar hafa átt sér stað frá 1996?
     2.      Hve miklu námu óbeinar erlendar fjárfestingar í árslok 1998 eftir atvinnugreinum og hvaða breytingar hafa átt sér stað frá 1996?
    Sjávarútvegur verði tiltekinn sérstaklega og greint á milli veiða og vinnslu eftir því sem unnt er.


Skriflegt svar óskast.