Ferill 170. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 196  —  170. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um upplýsingatækni í skólum.

Frá Svanfríði Jónasdóttur.



     1.      Er það í samræmi við yfirlýstan vilja ráðherra til að efla upplýsingatækni í skólum landsins að selja Menntanetið?
     2.      Hvernig hyggst ráðherra tryggja jafnan aðgang allra skóla að námskeiðum og upplýsingum og aðra þátttöku sem er mikilvæg ef skólar eiga að vera virkir í upplýsingabyltingunni?
     3.      Mun ráðuneytið greiða viðbótarkostnað skóla við tölvumál þegar þeir eru ekki lengur hluti af félagslegu umhverfi Menntanetsins?