Ferill 171. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 197  —  171. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um netþjónustu við skóla.

Frá Sigríði Jóhannesdóttur.



     1.      Hvernig sér ráðherra fyrir sér að sérhæfðri skólaþjónustu verði sinnt eftir að Menntanetið, sem hefur verið eina fyrirtækið/stofnunin í landinu sem hefur sérhæft sig í netþjónustu við skóla og menntastofnanir, hefur verið selt án slíkra skilyrða?
     2.      Hvaða aðili mun taka við hlutverki Menntanetsins varðandi fjarmenntun KHÍ og VMA?
     3.      Telur ráðherra að fámennir skólar í litlum sveitarfélögum sitji við sama borð og hinir fjölmennari í stærri sveitarfélögunum hvað varðar möguleika og þátttöku þegar búið er að selja Menntanetið án nokkurra kvaða?