Ferill 178. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 205  —  178. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um smíði skipa.

Frá Jóhanni Ársælssyni.



     1.      Hve mörg skip lengri en 15 m eru nú í smíðum fyrir Íslendinga
                  a.      innan lands,
                  b.      erlendis?
         Fram komi í hvaða löndum þau eru smíðuð.
     2.      Hve mörg ný skip lengri en 15 m voru smíðuð fyrir Íslendinga á árunum 1995–98
                  a.      innan lands,
                  b.      erlendis?
         Fram komi í hvaða löndum þau voru smíðuð.
     3.      Hefur eða hafði Siglingastofnun Íslands eftirlit með smíði skipa sem spurt er um í 1. og 2. lið, og þá hve mörgum? Fram komi skipting eftir löndum varðandi þau skip sem smíðuð voru erlendis.