Ferill 180. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 209 — 180. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um beinþynningu.
Frá Svanfríði Jónasdóttur.
1. Hvaða rannsóknir hafa farið fram á beinþynningu hér á landi og hverjar hafa verið meginniðurstöður þeirra? Hversu útbreiddur er þessi heilbrigðisvandi? Hefur ráðuneytið staðið að rannsóknum á beinþynningu?
2. Hvernig er unnið að forvörnum gegn beinþynningu og hver hefur þáttur ráðuneytisins verið í þeim?
3. Er áformuð þátttaka Tryggingastofnunar í kostnaði við beinþéttnimælingar?