Ferill 96. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 212  —  96. mál.




Svar



heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ástu R. Jóhannesdóttur um ár aldraðra.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvað hefur verið gert á vegum ráðuneytisins sérstaklega í málefnum eldri borgara á ári aldraðra? Hefur verið haft samráð við samráðsnefnd aldraðra? Ef svo er, hvenær og af hvaða tilefni?
    Sjö manna framkvæmdastjórn, skipuð af heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur haft umsjón með verkefnum í tilefni af ári aldraðra. Áhersla hefur verið lögð á víðtæka samvinnu um verkefnaskrá ársins hér á landi og voru því fulltrúar fjölmargra samtaka og stofnana kvaddir til samstarfs í samráðsnefnd. Á grundvelli stefnumiða Sameinuðu þjóðanna í málefnum aldraðra markaði framkvæmdastjórnin, í samvinnu við samráðsnefndina, þá stefnu sem unnið hefur verið eftir. Í samráðsnefndinni eiga sæti fulltrúar eftirtalinna stofnana og samtaka:
    ASÍ, BHM, BSRB, Biskupsstofu, Bændasamtaka Íslands, Félags eldri borgara í Reykjavík, Félags stjórnenda í öldrunarþjónustu, Íþróttasambands Íslands, Kvenfélagasambands Íslands, Landssambands eldri borgara, Landssambands lífeyrissjóða, Sambands almennra lífeyrissjóða, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Ungmennafélags Íslands, Vinnuveitendasambands Íslands, Öldrunarfræðafélags Íslands, Öryrkjabandalags Íslands og Tryggingastofnunar ríkisins.
    Undirbúningur að ári aldraðra hófst með fundi framkvæmdastjórnar árs aldraðra og samráðsnefndarinnar 4. júní 1998 þar sem lagðar voru línur að þeim verkefnum sem áhersla skyldi lögð á á árinu. Formlega hófst ár aldraðra með ráðstefnu í Kópavogi á vegum ASÍ, BSRB og Landssambands eldri borgara sem haldin var á alþjóðlegum degi aldraðra 1. október 1998. Yfirskrift ráðstefnunnar var „Þjóðfélag fyrir fólk á öllum aldri“. Meginviðfangsefnið voru starfslok og umræður um undirbúning einstaklinga og samtaka fyrir starfslok og viðbrögð fólks við þeim. Markmið ráðstefnunnar var að efla umræðuna um þessi mál í þjóðfélaginu og hvetja forustumenn í verkalýðssamtökunum til að láta sig þau varða.
    Til að kynna stefnumið Sameinuðu þjóðanna í málefnum aldraðra stóð framkvæmdastjórn árs aldraðra fyrir fundum í öllum kjördæmum landsins fyrri hluta ársins. Fundirnir voru haldnir í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Landssamband eldri borgara og verkalýðsfélögin og þá sóttu nokkur þúsund manns um allt land. Fundir voru haldnir í Reykjavík, Reykjanesbæ, á Selfossi, í Vestmannaeyjum, Borgarnesi og Hnífsdal, á Patreksfirði, í Skagafirði, á Akureyri, Húsavík, Reyðarfirði, Egilsstöðum og á Hornafirði. Í haust voru haldnir sambærilegir fundir í Hafnarfirði og Garðabæ.
    Segja má að grundvallarmarkmið Sameinuðu þjóðanna á ári aldraðra rúmist í yfirskriftinni „Þjóðfélag fyrir fólk á öllum aldri“. Með þessa yfirskrift að leiðarljósi hefur framkvæmdastjórn árs aldraðra valið sér viðfangsefni. Áhersla hefur verið lögð á endur- eða símenntun aldraðra, að brúa bilið milli kynslóða með því að stuðla að auknum og bættum samskiptum ungra og aldraðra og eins hefur framkvæmdastjórnin hvatt til heilsueflingar aldraðra.
    Meðal verkefna má t.d. nefna tölvunámskeið fyrir aldraðra hjá Viðskipta- og tölvuskólanum. Því lauk með útgáfu skýrslu sem á að nýtast öðrum við tölvukennslu aldraðra. Gott samstarf tókst við Reykjavíkurborg um margvísleg verkefni sem ætlað er að auka samskipti ungra og aldraðra. Má þar nefna tengsl sem komið var á milli félags- og þjónustumiðstöðva aldraðra, félagsmiðstöðva unglinga og grunnskóla borgarinnar og hafa leitt af sér ýmis samstarfsverkefni ungs fólks og eldri borgara. Til dæmis er í vetur boðið upp á tölvukennslu fyrir aldraða í nokkrum grunnskólum borgarinnar þar sem unglingar sjá um kennsluna undir umsjón tölvukennara. Hvað heilsueflingu aldraðra snertir má m.a. nefna sérstakt átak gegn beinþynningu sem felst í fræðslu og forvörnum. Alþjóðaheilbrigðisdagurinn 1999 var helgaður öldruðum og í tilefni þess var efnt til opins fundar í Salnum í Kópavogi þar sem fjallað var um nýsköpun á efri árum.
    Framkvæmdastjórn árs aldraðra hefur ekki eingöngu litið á það sem hlutverk sitt að standa fyrir verkefnum í tilefni ársins heldur ekki síður að vekja almenna umræðu um málefni aldraðra og styðja og hvetja aðra til að vinna að verkefnum í þeirra þágu. Í þessu skyni hafa verið veittir styrkir til ýmissa verkefna, t.d. útgáfu á ýmsu fræðslu- og kynningarefni. Gott samstarf tókst við Ríkisútvarpið sem hefur fjallað á margvíslegan hátt um aldraðra og málefni þeirra. Meðal annars má nefna 11 útvarpsþætti á Rás 1 í umsjá Stefáns Jökulssonar sem útvarpað var fyrri hluta þessa árs, þar sem fjallað var um málefni aldraðra frá ýmsum hliðum. Einnig styrkti framkvæmdastjórn árs aldraðra gerð átta útvarpsþátta sem nú er verið að flytja á Rás 1. Finnbogi Hermannsson ræðir þar við fólk á efri árum um starfslok þess og hvernig það hagar lífi sínu eftir að það er hætt þátttöku á vinnumarkaði.
    Aldraðir eru afar breiður hópur fólks sem býr við margvíslegar og ólíkar aðstæður. Til að fá yfirsýn og skilning á aðstæðum aldraðra og brýnustu hagsmunamálum þeirra fékk framkvæmdastjórnin Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands til að gera viðamikla úttekt á högum aldraðra. Niðurstöðurnar eru birtar í skýrslunni Lífskjör, lífshættir og lífsskoðun eldri borgara á Íslandi 1988–1999. Kynslóðagreining og samanburður milli landa. Í skýrslunni er fjallað ítarlega um efnahagsleg lífskjör eldri borgara og þau borin saman við kjör annarra aldurshópa, auk samanburðar við aðrar þjóðir. Jafnframt vann Gallup í mars 1999 afar viðamikla könnun meðal aldraðra fyrir heilbrigðisráðuneytið: Viðhorfskönnun meðal aldraðra. (1200 manna úrtak fólks á aldrinum 65–80 ára). Þar var kannað viðhorf fólks á þessum aldri til margvíslegra mála. M.a. var spurt um húsnæðismál, heilbrigðisþjónustu og heilsufar, félagsþjónustu, félagsstarf, vinnuviðhorf og ýmis siðferðismál og einnig voru athugaðir ýmsir þættir sem lúta að kjörum aldraðra og lífsmáta þeirra.
    Miklar upplýsingar liggja nú fyrir um hagi aldraðra. Þær gera m.a. kleift að greina ýmis sérhópavandamál meðal aldraðra og vísa á leiðir til úrbóta. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur ákveðið að stofna nefnd sem fær það hlutverk að móta víðtæka stefnu í málefnum aldraðra til næstu fimmtán ára og er auðsætt að upplýsingar sem aflað hefur verið á ári aldraðra munu koma að góðu gagni í starfi nefndarinnar.
    Auk þess sem sérstaklega hefur verið unnið á vegum framkvæmdanefndarinnar eins og fyrr er getið skal bent á endurskoðun laga um málefni aldraðra og breytingar á almannatryggingum.
    Lög um málefni aldraðra, nr. 82/1989, hafa verið endurskoðuð og verður frumvarp þess efnis lagt fyrir Alþingi á næstunni. Í frumvarpinu er lögð áhersla á að auka þátttöku aldraðra í ákvörðunum um málefni þeirra.
    Með lögum nr. 149/1998, sem tóku gildi 1. janúar 1999, var frítekjumark tekjutryggingar hækkað hjá öllum hópum nema einhleypingum með ellilífeyri. Með lögunum var frítekjumark hjóna, sem bæði eru ellilífeyrisþegar, hækkað úr 28.156 kr. í 40.224 kr. Einnig er í lögunum tekið sérstakt tillit til þess ef annað hjónanna er ellilífeyrisþegi en hitt útivinnandi. Fyrir setningu laganna var slíkur bótaþegi meðhöndlaður eins og einstaklingur með 20.112 kr. frítekjumark en nú er gert ráð fyrir 50% viðbót vegna maka þannig að frítekjumarkið nemur 30.168 kr.
    Frítekjumark fyrir ellilífeyrisþega vegna hugsanlegra tekna úr lífeyrissjóði er óbreytt, en það nemur 9.104 kr. fyrir einstaklinga og 6.374 kr. fyrir hvort hjóna. Frítekjumörk þessi koma til viðbótar almennum frítekjumörkum, sem að framan var getið.
    Með reglugerð nr. 204/1999 voru vasapeningar vistmanna á stofnunum hækkaðir um 35%, úr 12.535 kr. í 16.829 kr. Upphæð vasapeninga fylgir nú bótaupphæð grunnlífeyris almannatrygginga og verður það lágmark sem vistmönnum á stofnunum er tryggt.
    Með reglugerð nr. 205/1999 var ákveðið að hækka bætur elli- og örorkulífeyris um 7%.
    Um síðustu áramót breyttust reglur um þátttöku Tryggingastofnunar ríkisins í kostnaði við tannlækningar. Meðal breytinga eru þessar:
       –      Elli- og örorkulífeyrisþegar sem hafa ekki tekjutryggingu fá nú 50% af kostnaði (áður ekkert).
       –      Elli- og örorkulífeyrisþegar með skerta tekjutryggingu fá nú 75% af kostnaði (áður 50%).
       –      Elli- og örorkulífeyrisþegar sem eru langsjúkir og njóta ekki vasapeninga fá nú 100% (áður 75%).

    Samráðsnefnd stjórnvalda og samtaka aldraðra hefur ekki verið kölluð til fundar með framkvæmdanefnd árs aldraðra. Þess má hins vegar geta að formaður Landssambands eldri borgara, sem situr í samráðsnefndinni, á jafnframt sæti í framkvæmdastjórn árs aldraðra. Þá hefur samráðsnefnd framkvæmdastjórnar árs aldraðra verið kölluð saman reglulega, henni gerð grein fyrir stöðu verkefna og leitað hugmynda og álits á störfum framkvæmdastjórnarinnar. Formaður félags eldri borgara í Reykjavík, sem situr í samráðshópi stjórnvalda og samtaka aldraðra, situr jafnframt í samráðshópi framkvæmdastjórnar árs aldraðra.
    Hér hefur verið sagt stuttlega frá því helsta sem unnið hefur verið að á ári aldraðra á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins. Í lok ársins verður gefin út skýrsla þar sem gerð verður nánari grein fyrir verkefnum á ári aldraðra.