Ferill 168. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 260 — 168. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar um ættleiðingar einhleypra.
1. Hversu oft hefur einhleypum verið veitt heimild til ættleiðingar?
Í svari þessu er gert ráð fyrir að fyrirspurnin lúti að ættleiðingum á börnum en ekki full
2. Hvenær var það gert?
Árin 1992 og 1995 var veitt eitt ættleiðingarleyfi hvort ár en tvö árið 1999. Vilyrði vegna tveggja síðartöldu málanna voru fyrst gefin út árin 1996 og 1997.
3. Í hve mörgum tilvikum hafa börnin komið erlendis frá?
Í elsta málinu var um að ræða ættleiðingu á íslensku barni en í hinum tilfellunum var um frumættleiðingu á erlendu barni að ræða.
4. Hvaða aðstæður hafa einkum verið lagðar til grundvallar heimild til ættleiðingar einhleypra innan lands?
Aðstæður í fyrrgreindum fjórum málum voru ólíkar. Í tveimur fyrrgreindu málunum var um að ræða að ættleiðingarleyfi var veitt á grundvelli undanfarandi fósturs. Í öðru þeirra var um erlent barn að ræða en ráðuneytið gaf í því máli ekki út vilyrði, en í síðartöldu málunum tveimur var ættleiðingarleyfi gefið út í kjölfar útgáfu vilyrðis ráðuneytisins. Í öllum tilvikum var talið að umsækjendur hefðu sýnt fram á að þeir væru hæfir til að ættleiða barn og að að
5. Telur ráðherra að leggja beri annars konar mat á hæfi einhleypra til ættleiðingar en gert er í tilviki hjóna eða fólks í sambúð?
Vísað er til svars við 6. lið.
6. Hvaða kringumstæður þurfa að vera fyrir hendi að mati ráðherra til að rétt sé að heimila einhleypum ættleiðingu?
Í leiðbeiningum sem ráðuneytið hefur gefið út fyrir barnaverndarnefndir varðandi umsagn