Ferill 137. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 277  —  137. mál.



Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Gunnars Ólafssonar um aðgang nemenda að klám- og of beldisefni á netinu.

     1.      Hvað hyggst ráðherra gera varðandi aðgang grunn- og framhaldsskólanema að klám- og ofbeldisefni á netinu?
    Rétt er að taka af allan vafa um að í íslenskum skólum er nemendum grunn- og framhalds skóla með öllu óheimilt að nota tölvur og netaðgang skólanna í ólöglegum tilgangi, þar á meðal til þess að nálgast eða dreifa ofbeldis- og klámefni á netinu. Er því treyst að skóla stjórnendur, kennarar og annað starfsfólk skólanna geri sitt ítrasta og beiti viðurlögum til að koma í veg fyrir að búnaður og netaðgangur skólanna sé misnotaður með þessum hætti. Brýnt er að skólar sem enn hafa ekki gert nemendum það ljóst að þessi iðja sé með öllu bönnuð inn an skólans geri það hið fyrsta og skilgreini jafnframt hvernig tekið verður á slíkum málum. Upplýsa þarf foreldra um viðurlög í þessum efnum og kalla þá til samábyrgðar. Hið sama á raunar við um almennan aga og reglufestu.
    Í framhaldskólum eiga skólareglur að taka af allan vafa um til hvers er ætlast af nemend um og á grunnskólastigi hefur ráðherra beitt sér fyrir aukinni reglufestu í skólastarfi með skipan starfshóps um skólareglur og aga í grunnskólum í samvinnu við landssamtök foreldra Heimili og skóli, umboðsmann barna, Skólastjórafélag Íslands, Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga. Hópurinn lauk störfum í ágúst sl. og hefur ráðherra fallist á tillögur hans um framhald málsins. Mikilvægt er að áhersla verði lögð á að skapa góðan vinnuanda í hverjum skóla og í einstökum bekkjardeildum í góðu samstarfi við foreldra. Gera á kröfu um námsaga og sjálfsaga nemenda, góða umgengni, jákvæð samskipti, umburðar lyndi, kurteisi og háttvísa framkomu. Reglugerð um skólareglur og aga í grunnskólum er í endurskoðun og mun taka mið af framangreindum atriðum.
    En slík viðleitni dugar ekki ein sér, enda er ljóst að nemendur á grunn- og framhaldsskóla aldri geta komist í klám og ofbeldisefni eftir mörgum leiðum. Þannig hafa margir skólastjórn endur látið í ljós þá skoðun að þeir treysti sér vel til að stemma stigu við þessum ófögnuði í tölvukerfum skólanna sjálfra en algengt sé að nemendur beri efnið inn í skólann eftir öðrum leiðum, til dæmis á disklingum heiman frá sér eða frá vinum og kunningjum þar sem eftirlit með netnotkun nemenda er ef til vill ekki nægilega strangt. Ef þetta er tilfellið liggur höfuð vandinn ekki í aðgangi nemenda að klámi og ofbeldisefni innan skólanna heldur aðgangi þeirra að slíku efni utan hans. Ábyrgð foreldra og annarra aðstandenda er því einnig mikil og brýnt að tekið sé á málinu á þeim vettvangi um leið og leitast er við að koma í veg fyrir að tölvukerfi skólanna verði griðarstaður misnotkunar af þessu tagi. Foreldrar þurfa að fylgj ast með netnotkun barna sinna og standa saman um aðgerðir.

     2.      Er ráðherra tilbúinn að beita sér fyrir því að skólarnir fái fullnægjandi búnað til að hindra aðgang nemenda að óæskilegu efni á netinu?
    Eins og greint er frá hér að framan er það á ábyrgð einstakra skóla að koma í veg fyrir um rædda misnotkun á tölvukosti og nettengingu. Rekstur grunnskóla er í höndum sveitarfélaga og ákvarðanir um viðbrögð við þessum vanda á hverjum stað er því þeirra. Þar sem vandinn getur verið afar mismunandi eftir því hvar borið er niður er mikilvægt að tryggja svigrúm skólanna til að bregðast við með viðunandi hætti í hverju tilfelli, hvort sem það er með upp setningu sérstaks hugbúnaðar, sem lokar á klám og ofbeldissíður, uppsetningu eftirlitsmynda véla í tölvuverum eða með öðrum hætti.
    Nokkrir framhaldsskólar hafa nú komið sér upp búnaði sem hindrar aðgang nemenda og annarra að klámi og ofbeldisefni á netinu. Sem dæmi um slíkan búnað má nefna sérstakt for rit sem skimar allar síður sem nemendur og aðrir í skólanum hyggjast fara inn á og sé um dónaskap eða annað viðlíka að ræða kemur forritið í veg fyrir að síðan birtist á skjá viðkom andi. Hér er um einfalda og áhrifaríka aðferð að ræða sem lokar á aðgang nemenda að klám- og ofbeldissíðum á netinu. Þetta er einnig tiltölulega ódýr lausn miðað við heildarútgjöld skóla við tölvu- og hugbúnaðarkaup.
    Á grundvelli reiknilíkans er um 140 millj. kr. ráðstafað til eignakaupa í framhaldsskóla óskilgreint en samkvæmt athugunum ráðuneytisins vörðu framhaldsskólar allt að helmingi þeirrar fjárhæðar til kaupa á tölvubúnaði árið 1998. Að auki var í ár sérstaklega varið um 21 millj. kr. til tækjakaupa í framhaldsskólum á grundvelli umsókna. Af þessu er ljóst að ekki þarf að grípa til sérstakra ráðstafana til að gera framhaldsskólum kleift að bregðast við meint um vanda og koma í veg fyrir að nemendur skólans hafi aðgang að óæskilegu efni í gegnum staðarnet skólans. Framhaldsskólarnir sjálfir þurfa ákveða hvernig þeir vilja nýta það fjár hagslega svigrúm sem skólasamningarnir gefa þeim og brýnt er að umræða um það fari fram í öllum framhaldsskólum.