Ferill 232. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 283 — 232. mál.
Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um rekstrarkostnað Húsnæðisstofnunar ríkisins og Íbúðalánasjóðs.
Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.
1. Hver var rekstrarkostnaður Húsnæðisstofnunar ríkisins á árunum 1997 og 1998 og áætlaður rekstrarkostnaður Íbúðalánasjóðs 1999 og 2000, á sama verðlagi?
Óskað er eftir að rekstrarkostnaður verði sundurliðaður eins og gert hefur verið í árs
2. Hver var fjöldi starfsmanna og stöðugilda hjá Húsnæðisstofnun ríkisins annars vegar og Íbúðalánasjóði hins vegar miðað við eftirfarandi dagsetningar:
a. hjá Húsnæðisstofnun 1. mars og 1. nóvember 1997 og 1. mars og 1. nóvember 1998,
b. hjá Íbúðalánsjóði 1. mars og 1. nóvember 1999?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.
Í ársreikningi Byggingarsjóðs ríkisins hafa eftirfarandi liðir verið sundurgreindir:
1. Rekstrarkostnaður: Laun; Launatengd gjöld; Greitt í lífeyrissjóð; Tölvuþjónusta Reiknistofu bankanna; Veðdeild Landsbanka Íslands (eða sambærilegt); Prentun, pappír, ritföng, blöð og bækur; Auglýsingar og kynningar; Sími og burðargjöld; Birtingarkostn
2. Þóknun og þjónustutekjur: Tæknideild; Lögfræðiþjónusta; Tilkynningar og greiðslugjald; Vanskilakostnaður; Aðrar tekjur; Samtals.