Ferill 268. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 363 — 268. mál.
Fyrirspurn
til iðnaðarráðherra um virkjanir og umhverfismat.
Frá Einari K. Guðfinnssyni.
1. Hvaða framkvæmdir við virkjanir, jafnt gufuafls- sem vatnsaflsvirkjanir, hafa hafist frá árinu 1993? Hverjir eru eigendur þessara virkjana og hverjir munu reka þær?
2. Hver er orkuvinnslugeta virkjananna, hverrar fyrir sig?
3. Hverjar þessara virkjanaframkvæmda fóru ekki í umhverfismat og á hvaða lagagrundvelli var það ákveðið?
Skriflegt svar óskast.