Ferill 117. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 381 — 117. mál.
Breytingartillaga
við frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1999.
Frá meiri hluta fjárlaganefndar (JónK, EOK, ArnbS, ÁJ, HjálmJ, ÍGP, KPál).
Við bætist ný grein, 4. gr., sem orðist svo:
Við 7. gr. fjárlaga fyrir árið 1999 bætist nýr liður, svohljóðandi:
8.23 Að greiða 700 m.kr. aukaframlag til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem verði ráðstafað þannig: Allt að 350 m.kr. verði varið til þjónustuframlaga til sveitarfélaga á grundvelli 12. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 44/1999, og allt að 350 m.kr. til sveitarfélaga þar sem íbúafækkun hefur orðið á árunum 1997–99. Félagsmálaráðherra setur nánari reglur um úthlutunina í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga.