Ferill 283. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 423  —  283. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um reglugerð um leiðbeiningar- og tilkynningarskyldu fyrir brotaþola.

Frá Ögmundi Jónassyni.



    Hvenær er að vænta reglugerðar um leiðbeiningar- og tilkynningarskyldu lögreglu og ríkissaksóknara um gang mála fyrir þolendur kynferðisofbeldis eins og kveðið er á um að setja skuli í 4. mgr. 44. gr. a í lögum um meðferð opinberra mála, nr. 19/1991?