Ferill 286. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 435  —  286. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins, nr. 61/1997, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 125. löggjafarþingi 1999–2000.)



1. gr.

    4. gr. laganna orðast svo:
    Halda skal ársfund Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins fyrir 31. maí ár hvert. Nánar skal kveðið á um ársfund í reglugerð.
    Viðskiptaráðherra skipar á ársfundi fimm menn í stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins til eins árs í senn. Stjórnin skal þannig skipuð: einn eftir tilnefningu iðnaðarráðherra, einn eftir tilnefningu iðnaðarráðherra samkvæmt ábendingum samtaka atvinnufyrirtækja í iðnaði, einn eftir tilnefningu sjávarútvegsráðherra, einn eftir tilnefningu sjávarútvegsráðherra samkvæmt ábendingum samtaka atvinnufyrirtækja í sjávarútvegi og einn samkvæmt tilnefningu Alþýðusambands Íslands. Stjórnin skiptir með sér verkum.
    Ráðherra ákveður þóknun stjórnarmanna.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.

    Núverandi stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins situr fram að fyrsta ársfundi sem halda skal eigi síðar en 31. maí 2000, sbr. 1. mgr. 4. gr. laganna.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins varð til við það að fjárfestingarsjóðir í iðnaði og sjávarútvegi voru sameinaðir. Tilgangur stofnunar sjóðsins var að tryggja atvinnulífinu betri aðgang að fjármagni til nýsköpunar og þróunar en verið hafði.
    Nýsköpunarsjóðurinn hefur á starfstíma sínum lagt áherslu á að stuðla að arðbærri uppbyggingu og vexti íslensks atvinnulífs með því að taka þátt í fjárfestingarverkefnum á sviði nýsköpunar með áhættufjármagni og styðja við þróunar- og kynningarverkefni auk þess að sinna tryggingum vegna útflutningslána.
    Á þeim tíma sem sjóðurinn hefur starfað hefur komið í ljós að þörf er á því að haldnir verði ársfundir reglulega eins og almennt tíðkast í atvinnulífinu. Þörf fyrir miðlun upplýsinga er tengjast starfsemi Nýsköpunarsjóðs og annarra stofnana sem ráðstafa opinberu fé er síst minni en almennt gildir í atvinnulífinu. Á grundvelli þess er í frumvarpi þessu lagt til að ársfundir Nýsköpunarsjóðs verði festir í sessi. Gert er ráð fyrir að ráðherra setji nánari ákvæði um dagskrá og fyrirkomulag funda í reglugerð en við það miðað að dagskrá ársfunda Nýsköpunarsjóðs verði með hefðbundnu sniði.
    Vegna þess að starfsemi sjóðsins hverfist öðru fremur um nýsköpunar- og atvinnuþróunarmál þar sem sveigjanleiki þarf að vera í fyrirrúmi er lögð á það áhersla að ársreikningar liggi fyrir snemma árs og að stefnumörkun og ákvörðunartaka verði markviss. Til samræmis við það á að vera unnt að halda ársfundi tiltölulega snemma árs og er því lagt til að lögfesta að þeir verði ekki haldnir síðar en 31. maí ár hvert.
    Gert er ráð fyrir að fjöldi stjórnarmanna verði óbreyttur og að stjórnin verði skipuð fulltrúum sömu aðila og verið hefur. Með tilkomu ársfunda er þó eðlilegt að skipunartími stjórnar miðist við þá og að skipunartíminn verði á sama hátt eitt ár.
    Til að skapa ekki óþarfa röskun á starfsemi Nýsköpunarsjóðs er lagt til að núverandi stjórn sitji fram að fyrsta ársfundi sjóðsins.


Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um
Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins, nr. 61/1997, með síðari breytingum.

    Í frumvarpi þessu er kveðið á um aðalfund og skipan stjórnar Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki séð að það hafi kostnað í för með sér fyrir ríkissjóð.