Ferill 222. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 460  —  222. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Bergljótar Halldórsdóttur um skattlagningu í sjávarútvegi.

     1.      Hve mikið hafa fyrirtæki í sjávarútvegi, í fiskveiðum og fiskvinnslu, greitt í skatta undanfarin fimm ár? Óskað er eftir sundurliðun eftir árum og tegund skatta, þ.e. tekjuskatti, útsvari, tryggingagjaldi, eignarskatti og skatti af söluhagnaði eigna.
    Í meðfylgjandi töflu eru tiltækar upplýsingar um tekjuskatt, eignarskatt og tryggingagjald fyrirtækja í sjávarútvegi. Um er að ræða álagningu 1995–99 vegna tekjuáranna 1994–98. Hinar tilgreindu fjárhæðir eru álögð gjöld en ekki greidd. Í einhverjum tilvikum getur verið um áætlun að ræða. Yfirlitið nær ekki til aðila sem hafa milligöngu um sölu sjávarafurða og aðeins til lögaðila en ekki einstaklinga með rekstur í eigin nafni. Skattur af söluhagnaði eigna er innifalinn í framangreindum tölum þar sem söluhagnaður er ekki sérgreindur skattstofn en kemur til skattlagningar með öðrum tekjum.


Tekjuár

Framtal
Tekjuskattur,
millj. kr.
Eignarskattur,
millj. kr.
Sérstakur eignarskattur, millj. kr. Tryggingagjald,
millj. kr.
1994 1995 148 93 19 858
1995 1996 272 119 25 919
1996 1997 276 127 27 1.218
1997 1998 472 157 33 1.320
1998 1999 603 152 32 1.640

     2.      Hve miklir skattar hafa verið greiddir í sjávarútvegi af söluhagnaði veiðiheimilda síðustu fimm ár, sundurliðað eftir árum?
     3.      Hve miklar fyrningar af veiðiheimildum hafa verið taldar fram af fyrirtækjum í sjávarútvegi síðustu fimm ár, sundurliðað eftir árum?

    Til svars við 2. og 3. lið fyrirspurnarinnar skal bent á að söluhagnaður og fyrningar af veiðiheimildum eru ekki skráðar sérstaklega í skattskilum lögaðila og því ekki unnt að veita umbeðnar upplýsingar.