Ferill 220. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 462  —  220. mál.




Svar



viðskiptaráðherra við fyrirspurn Bergljótar Halldórsdóttur um samhengi milli sölu veiðiheimilda og verðbólgu.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hefur sala á aflamarki og aflahlutdeild í sjávarútvegi leitt til aukins peningamagns í umferð síðustu fimm fiskveiðiár?
     2.      Ef svo er, má þá að einhverju leyti skýra núverandi þenslu og verðbólgu með því?


    Ráðuneytið leitaði álits Seðlabanka Íslands á þeim atriðum sem spurt er um og er svarið byggt á greinargerð bankans.
    Á undanförnum árum hafa átt sér stað grundvallarbreytingar á rekstrar- og fjármálaumhverfi íslensks sjávarútvegs. Afdrifaríkustu breytingarnar eru annars vegar þær að aflaheimildir eru verðlagðar sem eignir og ganga kaupum og sölum innan sjávarútvegsins. Hins vegar hófst víðtæk markaðsvæðing sjávarútvegsfyrirtækja árið 1992. Nú eru alls 20 sjávarútvegsfyrirtæki skráð á Verðbréfaþingi Íslands og um 10 fyrirtæki eru á óformlegum hlutabréfamarkaði. Má ætla að markaðsvirði þeirra sjávarútvegsfyrirtækja sem nú eru skráð á hlutabréfamarkaði sé um 73 milljarðar kr. Til samanburðar má geta þess að árið 1995 voru átta sjávarútvegsfyrirtæki skráð með samanlagt markaðsvirði að fjárhæð 11,5 milljarðar kr. Jafnframt hefur verið hagrætt í sjávarútveginum með stórfelldum samruna og uppkaupum fyrirtækja. Sjávarútvegsfyrirtæki starfa því í gerbreyttu rekstrar- og fjármálaumhverfi frá því sem var í byrjun þessa áratugar. Þessar breytingar hafa annars vegar haft áhrif inn á við á rekstur og efnahag sjávarútvegsfyrirtækja og út á við á allt efnahagslífið og þar með á fjármála- og peningakerfið.
    Við markaðsvæðingu kvóta og sjávarútvegsfyrirtækja hafa orðið til nýjar eignir og aðrar orðið til muna söluhæfari en áður. Heildareignir fyrirtækjanna hafa hækkað við þessar breytingar og orðið hafa til markaðshæfar eignir sem myndað geta andlag við ný lán úr lánakerfinu. Lánastofnanir hafa veitt lán til kaupa á kvóta og kaupa á hlutabréfum í sjávarútvegsfyrirtækjum. Fé sem hefur verið greitt fyrir þessar eignir hefur síðan farið í aðra ráðstöfun innan og utan íslenska hagkerfisins. Lánastofnanir hafa talið sig hafa góð veð fyrir þessum lánveitingum og góðar vonir um arð og endurheimtur. Lánastofanir eru þó alltaf bundar af innri og ytri útlánahömlum sem eiginfjárreglur (CAD-reglur), lausafjárreglur og eigin útlánamatsreglur setja, ásamt reglum um lánveitingar til og eign í einstökum fyrirtækjum.
    Því má velta fyrir sér hvort verðmæti í aflaheimildum og markaðsvæðing sjávarútvegsfyrirtækja hafi orðið lánastofnunum hvatning til að auka útlán. Svo hefði ekki þurft að vera ef eigendur hinna nýju kvótaverðmæta hefðu alfarið haldið í eignarhluti sína í sjávarútvegsfyrirtækjum. Ýmsir þeirra hafa hins vegar kosið að selja eignir sínar í sjávarútvegi, ýmist sem hluti í fyrirtækjum eða með því að selja eignir út úr fyrirtækjum sínum. Sú staðreynd blasir við að skuldir sjávarútvegsfyrirtækja hafa aukist þrátt fyrir að fjárfesting í rekstrarfé virðist vera svipuð eða heldur minni en afskriftir og hagnaður. Skuldaaukningin verður því einungis skýrð með því að sjávarútvegsfyrirtæki hafa keypt aflaheimildir og önnur sjávarútvegsfyrirtæki, heil eða að hluta, og að stofnanir lánakerfisins hafi fjármagnað þessi kaup að verulegu leyti. Það er í fullu samræmi við eðlileg markmið og starfsreglur þessara stofnana. Hinar nýju eignir sjávarútvegsfyrirtækjanna eru fullnægjandi andlag lánveitinganna, enda hefur raunverulegt eigið fé sjávarútvegsfyrirtækjanna aukist með tilkomu kvótaeignar og markaðsvæðingar sjávarútvegsfyrirtækja. Myndast hefur tilefni fyrir lánastofnanir að lána sjávarútvegsfyrirtækjum til að kaupa aflaheimildir og hlutabréf annarra sjávarútvegsfyrirtækja.
    Hugsanlegt er að lánastofnanir hefðu nýtt eiginfjársvigrúm og fjáröflunarfæri sín til annarra lánveitinga ef útlánafærin í sjávarútvegi hefðu ekki verið fyrir hendi. Á móti hefðu sjávarútvegsfyrirtækin getað fullnægt fjárþörf sinni með öðrum hætti, hlutafjárútboðum eða beinum lántökum erlendis frá. Niðurstaðan hlýtur því að vera sú að heildarfjármögnun lánakerfisins — lánastofnana og erlendra lánveitenda — hafi orðið meiri en ella vegna þeirra færa á sameiningu og eignasölu sem til hafa orðið í sjávarútvegi.
    Á það er vert að benda að þessar breytingar eru einungis eitt af fjölmörgum dæmum um að sífellt fleiri eignir koma í umferð á fjármálamörkuðum vegna markaðsvæðingar. Hugsanlega er sú mynd sem nú blasir við aðeins upphafið á langtímaþróun.

Hvað segja gögnin?
    Frá árinu 1994 og fram á mitt ár 1999 hafa skuldir sjávarútvegsins hækkað um rúma 43 milljarða kr. á föstu verði júníloka 1999, eða í 154 milljarða kr. Eru þá talin saman öll lán innan og utan lánakerfisins. Skuldir sjávarútvegsins við lánakerfið (banka, fjárfestingarlánasjóði, eignarleigur og fleiri stofnanir, sem og útlönd) hafa á sama tíma hækkað um 32 milljarða kr. á verði júníloka 1999. Á þessu tímabili hefur verg fjármunamyndun í sjávarútvegi að meðtöldum birgðabreytingum numið um 46 milljörðum kr. á sambærilegu verðlagi. Við þessa upphæð verður að bæta hlutdeild sjávarútvegs í óflokkaðri fjármunamyndun, bifreiðum til atvinnurekstrar og tölvubúnaði. Má meta hana framreiknaða samtals á um 8 milljarða kr. á árunum 1994–99. Heildarfjármunamyndun í sjávarútvegi á þessu tímabili er því um 54 milljarðar kr. á verði í júnílok 1999 eða 11 milljörðum kr. hærri en skuldaaukningin.
    Ráðstöfunarfé sjávarútvegs til fjárfestinga í rekstrarfé, aflaheimildum, eignarhlutum og langtímafjáreignum er þó mun hærra en skuldaaukningunni nemur. Við fjármögnun með lántökum þarf að bæta afskriftum, hagnaði og aukningu hlutafjár. Hlutafjársala í opnum útboðum hefur á þessum tíma skilað sjávarútvegsfyrirtækjum 14 milljörðum kr., framreiknað með framangreindum hætti. Lauslegt mat bendir til að framreiknaðar afskriftir sjávarútvegs hafi numið um 61 milljarði kr. og hagnaður um 8 milljörðum kr. á þessu tímabili. Þar sem ætla verður að hluti hagnaðar hafi verið greiddur út sem arður verður hér einungis gert ráð fyrir að afskriftir, skuldaaukning og opin hlutafjárútboð hafi verið sjávarútveginum tiltæk til fjárfestingar. Með því virðast sjávarútvegsfyrirtæki hafa haft hartnær 120 milljörðum kr. til ráðstöfunar til fjárfestinga og hafa þar af nýtt nær 55 milljarða kr. til kaupa á rekstrarfé. Þeim á að giska 65 milljörðum kr. sem eftir standa virðist því hafa verið ráðstafað með öðrum hætti innan sjávarútvegsins.
    Samkvæmt lauslegu mati sem gert hefur verið á óafskrifaðri eign sjávarútvegsfyrirtækja á keyptum aflaheimildum er verðmæti þeirra um 26 milljarðar kr. á miðju ári 1999. Kaup þeirra hafa að langmestu leyti farið fram á allra síðustu árum en samkvæmt mati Þjóðhagsstofnunar á keyptum veiðiheimildum árið 1996 var verðmæti þeirra þá um 12 milljarðar kr. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hve sjávarútvegsfyrirtækin eiga mikið áhættufé en upplýsingar eru til um bókfært verðmæti áhættufjár í eigu sjávarútvegsfyrirtækja á Verðbréfaþingi. Það nam um 9,7 milljörðum kr. á miðju ári 1999 og hafði hækkað úr 4,2 milljörðum kr. frá árslokum 1996. Nú eru 20 sjávarútvegsfyrirtæki skráð á formlegum hlutabréfamarkaði og framleiðsla þeirra er um 58% af útflutningsframleiðslu í sjávarútvegi. Ætla má að það séu einkum stærri fyrirtækin sem fjárfesta í áhættufé, þ.e. fyrst og fremst þau fyrirtæki sem skráð eru á hlutabréfamarkaði.
    Af þessu má álykta að á móti þeim 65 milljörðum kr. sem sjávarútvegurinn virðist hafa haft til ráðstöfunar umfram kaup á rekstrarfé á hálfu fimmta ári frá ársbyrjun 1994 megi telja fram kaup á aflaheimildum og áhættufé sem nema a.m.k. 35–40 milljörðum kr. Um þennan mismun er það að segja annars vegar að erfitt er að fá nákvæmar niðurstöður úr þeim ófullkomnu gögnum sem fyrir liggja og hins vegar að skýringar kunna að liggja í samruna keyptra fyrirtækja við fyrirtækin sem þau keyptu, auk þess sem viðskipti með rekstrarfé milli fyrirtækja sjást hvorki í fjárfestingartölum Þjóðhagsstofnunar né sem áhættufé í reikningum fyrirtækjanna.
    Seðlabanki Íslands hefur lauslega kannað útlán lánastofnana með veðum í aflaheimildum. Helstu niðurstöður voru þær að gætt hefur vaxandi varkárni lánastofnana við útlánamat þar sem veð hefur verið tekið í verðmæti aflahlutdeilda. Helstu lánastofnanir hafa mótað það verklag að meta lánshæfi fyrirtækja út frá tekju- og rekstrargrunni og arðsemi og tekjustreymi fjárfestingaráætlana. Almennt er ekki lánað einhliða út á verðmæti aflaheimilda og eru aflahlutdeildir ekki sjálfstætt tilefni til eða nægjanleg forsenda fyrir nýjum lánum hjá þremur af fjórum helstu lánastofnunum.

Hafa lánaumsvif vegna kvótaviðskipta valdið þenslu?
    Með tilkomu núverandi fiskveiðistjórnunarkerfis varð veruleg eignaaukning í hagkerfinu þegar aflaheimildir urðu verðmætar. Þetta hefur valdið því að heildarverðmæti eigna hefur vaxið og eigendur veiðiheimilda efnast sem því nemur. Það ætti í sjálfu sér að leiða til þess að einkaneysla þessara eigenda og eftirspurn eftir öðrum eignum aukist. Margt bendir þó til þess að það hafi gerst hægt þar sem mikil óvissa var í upphafi um hversu verðmæt réttindi í fiskveiðistjórnunarkerfinu væru og hvorki eigendur þessara réttinda né lánastofnanir töldu þau ein og sér réttmætt andlag lántöku. Í þeim tilvikum þegar eigendur nýju verðmætanna kusu að eiga þau áfram leiddi eignaaukningin því ekki til marktækrar aukningar eftirspurnar eftir öðrum eignum, vörum eða þjónustu til að byrja með. Til lengdar má gera ráð fyrir að þeir sem hafa efnast verulega kjósi að verja einhverjum hluta eignaaukans til neyslu. Þegar neysluviljanum er mætt með innlendri vöru og þjónustu felst í honum eftirspurnarauki sem getur leitt til þrýstings á verðlag. Talið er að hliðstæðra áhrifa gæti t.d. í Bandaríkjunum vegna hækkunar hlutabréfaverðs á undanförnum árum. Afar erfitt er hins vegar að meta hve mikil slík áhrif eru.
    Sumir eigendur sjávarútvegsfyrirtækja hafa trúlega kosið að losa um eignir eða koma þeim í annað form og aðrir hafa þá keypt á móti. Ef um væri að ræða bein eða óbein eignaskipti væru eftirspurnaráhrifin vísast engin enda hyrfi þá ekkert fé úr greininni. Ef fé er tekið út úr sjávarútvegsfyrirtæki og fest erlendis og kaupin fjármögnuð með erlendu láni er heldur ekki að vænta áhrifa á innlendum mörkuðum. Innlend eftirspurnaráhrif verða einungis ef eigið fé er tekið út úr sjávarútvegsfyrirtæki og notað til eignakaupa eða neyslu innan lands og einungis ef lánakerfið fjármagnar eiginfjárúttektina með lánsfé sem ekki hefði annars farið í umferð innan lands.
    Í því sambandi skiptir höfuðmáli hvort þær lánveitingar sem fara til sjávarútvegsins hefðu hvort sem er farið til annarra geira hagkerfisins. Það er líklegt nema eitthvað af eftirfarandi komi til:
     a.      að takmarkanir séu á leyfilegri útlánaaukningu hjá fjármálakerfinu, t.d. vegna eiginfjárkrafna eða lausafjárkrafna,
     b.      að lánakerfið skorti fé til útlána,
     c.      að skortur sé á arðvænlegum tækifærum til lánveitinga.
    Ljóst er að skilyrði a- og b-liðar hafa ekki hamlað lánakerfinu síðustu missirin þótt það gæti bráðlega breyst. Hitt er umdeilanlegra og afdrifaríkara hvort lánakerfið hefur þegar fullnýtt skynsamleg útlánafæri utan sjávarútvegs. Sé svo er líklegt að nýju útlánafærin í sjávarútvegi hafi aukið útlán til og að einhverju leyti eftirspurn eftir innlendum eignum, vörum og þjónustu og haft þannig áhrif á verðlag. Hins vegar er rétt að taka fram að hér er ekki um neitt viðbótartilefni að ræða sem ekki hefur komið fram t.d. í greiningu og umfjöllun Seðlabankans. Bankinn hefur varað við mikilli útlánaþenslu og hugsanlegt er að þessi þáttur sé með mörgum öðrum hluti af skýringu hennar þótt ekki sé líklegt að hann skipti sköpum. Þessi þáttur getur heldur ekki verið viðvarandi verðbólguvaldur þar sem hagstjórn, einkum stefnan í peningamálum, hlýtur að þurfa að mynda mótvægi gegn margvíslegum atriðum sem hafa áhrif á verðlag í því skyni að verðbólga haldist innan viðunandi marka.