Ferill 162. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.



125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 482  —  162. mál.




Frumvarp til laga



um breyting á lögum um gjaldeyrismál, nr. 87/1992.

(Eftir 2. umr., 17. des.)



1. gr.

    10. gr. laganna orðast svo:
    Aðilar sem annast gjaldeyrisviðskipti og fjármagnshreyfingar fyrir viðskiptamenn sína skulu hafa til reiðu skriflegar upplýsingar um slíka þjónustu ásamt upplýsingum um kostnað tengdan viðskiptunum og skilyrði fyrir yfirfærslu fjármuna, tímamörk sem áskilin eru til þess að ljúka yfirfærslum, kostnað við yfirfærslur, gengisskráningu sem miðað er við og um úrræði sem viðskiptamaður hefur telji hann ástæðu til þess að kvarta yfir viðskiptunum. Aðilar sem annast yfirfærslu á milli viðskiptareikninga á milli landa fyrir viðskiptamenn sína, eða móttöku yfirfærslu, skulu veita þeim skriflegar upplýsingar þar sem fram kemur staðfesting á að yfirfærsla hafi átt sér stað, fjárhæð yfirfærslunnar, kostnaður við hana og hver eigi að bera hann, svo og yfirfærslugengi, eigi slíkt við.
    Með viðskiptamönnum er bæði átt við einstaklinga eða lögaðila sem leggja fram beiðni um yfirfærslu og einstaklinga eða lögaðila sem lokamóttakendur yfirfærslunnar. Með viðskiptamönnum er hins vegar ekki átt við aðila sem annast gjaldeyrisviðskipti og fjármagnshreyfingar fyrir viðskiptamenn sína, lánastofnun, vátryggingafélag, fyrirtæki í verðbréfaþjónustu eða verðbréfasjóð.
    Heimilt er að veita upplýsingar þær sem tilgreindar eru í 1. mgr. með rafrænum hætti.

2. gr.

    Á eftir 10. gr. laganna koma þrjár nýjar greinar, svohljóðandi, og breytist númeraröð annarra greina samkvæmt því:

    a. (11. gr.)
    Nú óskar viðskiptamaður eftir því að aðili sem annast yfirfærslu á milli viðskiptareikninga á milli landa skuldbindi sig til að ljúka tiltekinni yfirfærslu innan ákveðinna tímamarka gegn ákveðnu gjaldi og skal aðilinn þá verða við þeirri ósk nema hann ákveði að hafna viðskiptunum. Skuldbindingin tekur ekki til yfirfærslugengisins.
    Yfirfærsla skal gerð án þess að kostnaður sé dreginn af yfirfærslufjárhæðinni nema viðskiptamaður sem bað um yfirfærsluna hafi tilgreint að móttakandi hennar eigi að greiða hluta af kostnaðinum eða hann allan.
    Ákvæði þessarar greinar taka eingöngu til yfirfærslna á milli viðskiptareikninga á milli aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins í evrum eða gjaldmiðlum ríkja Evrópska efnahagssvæðisins og að hámarki 4.000.000 kr. eða jafngildi þeirrar fjárhæðar í gjaldmiðlum ríkja Evrópska efnahagssvæðisins. Fjárhæð þessi er bundin við gengi evru (EUR) miðað við kaupgengi hennar 1. júlí 1999.

    b. (12. gr.)
    Hafi ekki verið samið um annað á milli viðskiptamanns og aðila sem annast yfirfærslu á milli viðskiptareikninga á milli landa skal henni lokið fyrir lok fimmta almenns viðskiptadags (bankadags) talið frá deginum eftir að beiðni viðskiptamanns barst um færsluna. Hafi yfirfærslu eða móttöku yfirfærslu ekki verið lokið innan tilskilins frests og frestur eða vanefndir verði ekki raktar til viðskiptamanns skal aðili sem annast yfirfærslu eða móttöku greiða viðskiptamanni vexti nema óviðráðanleg ytri atvik hafi komið í veg fyrir að unnt væri að ljúka yfirfærslu eða móttöku innan tímafrestsins. Hafi yfirfærslu eða móttöku yfirfærslu ekki verið lokið innan tilskilins frests og þegar um er að ræða yfirfærslur að fjárhæð allt að 1.000.000 kr. eða jafngildi þeirrar fjárhæðar í gjaldmiðlum ríkja Evrópska efnahagssvæðisins getur viðskiptamaður óskað eftir endurgreiðslu þeirrar fjárhæðar að viðbættum vöxtum og kostnaði við yfirfærsluna. Fjárhæð þessi er bundin við gengi evru (EUR) miðað við kaupgengi hennar 1. júlí 1999. Skal endurgreiðslan innt af hendi eigi síðar en fjórtán almennum viðskiptadögum (bankadögum) frá því að viðskiptamaðurinn óskaði eftir henni nema greiðslan hafi innan þess tímafrests verið greidd inn á reikning stofnunar móttakanda yfirfærslunnar.
    Ákvæði þessarar greinar taka eingöngu til yfirfærslna á milli viðskiptareikninga á milli aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins í evrum eða gjaldmiðlum ríkja Evrópska efnahagssvæðisins og að hámarki 4.000.000 kr. eða jafngildi þeirrar fjárhæðar í gjaldmiðlum ríkja Evrópska efnahagssvæðisins. Fjárhæð þessi er bundin við gengi evru (EUR) miðað við kaupgengi hennar 1. júlí 1999.
    Nánar skal kveðið á um framkvæmd þessarar greinar í reglugerð, þar á meðal um skuldbindingar sem hvíla á milliliðum er eiga þátt í yfirfærslu á milli viðskiptareikninga á milli aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins.

    c. (13. gr.)
    Í reglugerð skal kveðið á um þau kæru- og bótaúrræði sem standa viðskiptamanni til boða komi til ágreinings milli hans og aðila sem annast yfirfærslu á milli viðskiptareikninga á milli landa eða móttöku yfirfærslna í samræmi við ákvæði 11. og 12. gr. Skuldbindingar sem lagðar eru á þá sem annast yfirfærslu á milli viðskiptareikninga á milli landa eða móttöku yfirfærslna í samræmi við ákvæði 11. og 12. gr. eiga eftir atvikum einnig við þá aðila sem eru milliliðir í slíkum viðskiptum.

3. gr.

    14. gr. laganna (er verður 17. gr.) orðast svo:
    Viðskiptaráðherra fer með framkvæmd laga þessara. Hann setur reglugerð um framkvæmd þeirra.

4. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. febrúar 2000.