Ferill 232. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 507 — 232. mál.
Svar
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur um rekstrarkostnað Húsnæðisstofnunar ríkisins og Íbúðalánasjóðs.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hver var rekstrarkostnaður Húsnæðisstofnunar ríkisins á árunum 1997 og 1998 og áætlaður rekstrarkostnaður Íbúðalánasjóðs 1999 og 2000, á sama verðlagi?
Óskað er eftir að rekstrarkostnaður verði sundurliðaður eins og gert hefur verið í ársreikningum Byggingarsjóðs ríkisins undanfarin ár (sbr. greinargerð).
2. Hver var fjöldi starfsmanna og stöðugilda hjá Húsnæðisstofnun ríkisins annars vegar og Íbúðalánasjóði hins vegar miðað við eftirfarandi dagsetningar:
a. hjá Húsnæðisstofnun 1. mars og 1. nóvember 1997 og 1. mars og 1. nóvember 1998,
b. hjá Íbúðalánsjóði 1. mars og 1. nóvember 1999?
Farið er fram á sundurliðun rekstrarkostnaðar á sama hátt og gert hefur verið hjá Byggingarsjóði ríkisins undanfarin ár. Rekstur Íbúðalánasjóðs er nokkuð frábrugðinn rekstri Húsnæðisstofnunar ríkisins. Munar þar mestu að starfsemi sem áður var keypt samkvæmt samningi við veðdeild Landsbanka Íslands fer nú að öllu leyti fram hjá Íbúðalánasjóði, auk þess sem greitt er samkvæmt samningi við Búnaðarbanka Íslands á Sauðárkróki sem svarar til kostnaðar við tvo starfsmenn þar.
Í áætlunum sjóðsins fyrir árin 1999 og 2000 voru gerðar nokkrar breytingar á framsetningu rekstrarkostnaðar frá því sem gert var hjá Byggingarsjóði ríkisins. Þar sem hægt hefur verið að koma því við hefur áætlun fyrir Íbúðalánasjóð verið samræmd fyrri framsetningu. Ekki er unnt að taka út kostnað sem áður féll til hjá veðdeild Landsbanka Íslands og setja í eina tölu í áætlunina fyrir árin 1999 og 2000. Þess í stað hefur kostnaði við veðdeildina verið skipt niður í rétta kostnaðarliði. Samtals var kostnaðurinn 90.344 kr. árið 1997 og 102.250 kr. árið 1998, á verðlagi hvors árs.
Meðfylgjandi er yfirlit yfir rekstrarkostnað Húsnæðisstofnunar ríkisins tímabilið 1997– 1998 og áætlaður rekstrarkostnaður Íbúðalánasjóðs 1999–2000. Við framreikning á rekstrarkostnaði árin 1997 og 1998 var notuð neysluverðsvísitala júlímánaðar þessara ára og neysluverðsvísitala júlímánaðar 1999.
Tafla 1. Rekstrarkostnaður Húsnæðisstofnunar 1997–1998.
Áætlaður rekstrarkostnaður Íbúðalánasjóðs 1999–2000.
| 1997 |
1998 |
Áætlun 1999 |
Áætlun 2000 |
||
| Stuðull vísitölu | 1,0501 | 1,0261 | 1,0 | 1,0 | |
| Tekjur | |||||
| Þóknun og þjónustutekjur | |||||
|
Tæknideild
|
9.844 | 15.178 | 10.267 | 10.000 | |
|
Lögfræðiþjónusta
|
96.420 | 116.830 | 98.792 | 100.000 | |
|
Tilkynningar og greiðslugjald
|
117.305 | 125.237 | 130.579 | 130.000 | |
|
Vanskilakostnaður
|
40.555 | 32.503 | 43.473 | 45.000 | |
|
Aðrar tekjur
|
5.470 | 7.273 | 6.159 | 3.100 | |
|
Samtals
|
269.594 | 297.021 | 289.270 | 288.100 | |
| Gjöld | |||||
|
Laun og launatengd gjöld
|
210.373 | 260.557 | 193.800 | 168.500 | |
|
Greitt í lífeyrissjóð og framlag lífeyrisskuldbindinga
|
14.771 | 176.088 | 15.000 | 15.000 | |
|
Mötuneyti/starfsmannakostnaður
|
5.824 | 6.923 | 4.842 | 6.250 | |
|
Biðlaun
|
0 | 47.608 | 0 | 0 | |
|
Tölvuþjónusta Reiknistofu bankanna
|
63.417 | 64.890 | 74.675 | 75.000 | |
|
Rekstrarkostnaður fullnustueigna
|
0 | 0 | 30.000 | 30.000 | |
|
Prentun, pappír, ritföng
|
17.174 | 15.069 | 24.594 | 19.300 | |
|
Auglýsingar og kynningar
|
14.931 | 13.016 | 11.229 | 9.000 | |
|
Sími og burðargjöld
|
6.096 | 6.265 | 8.725 | 8.500 | |
|
Burðargjöld, Sauðárkrókur
|
4.631 | 5.599 | 8.783 | 12.000 | |
|
Birtingarkostnaður
|
9.674 | 16.626 | 14.934 | 12.000 | |
|
Ferðakostnaður
|
3.859 | 2.588 | 784 | 1.000 | |
|
Húsaleiga Reykjavík
|
11.453 | 11.633 | 2.520 | ||
|
Húsaleiga Sauðárkróki
|
0 | 0 | 3.896 | 4.000 | |
|
Rekstur fasteignar
|
8.559 | 6.414 | 5.766 | 9.500 | |
|
Rafmagn og hiti
|
1.289 | 1.111 | 1.704 | 1.700 | |
|
Fasteignagjöld
|
3.131 | 3.060 | 3.232 | 3.300 | |
|
Öryggisgæsla og ræsting
|
2.919 | 3.335 | 2.890 | 2.500 | |
|
Gjaldfærð áhöld og tæki, viðhald
|
9.022 | 11.636 | 2.036 | 2.500 | |
|
Aðkeyptur akstur
|
3.080 | 3.275 | 1.518 | 1.500 | |
|
Aðkeypt lögfræðiþjónusta
|
15.867 | 15.018 | 12.568 | 12.450 | |
|
Endurskoðun og reikningsskil
|
6.021 | 5.821 | 5.918 | 6.000 | |
|
Önnur sérfræðiþjónusta
|
10.770 | 4.165 | 9.211 | 11.000 | |
|
Tölvuþjónusta og lager
|
44.807 | 48.476 | 71.604 | 77.900 | |
|
Kostnaður vegna aldamóta/útboðs/nýs tölvukerfis
|
0 | 0 | 7.000 | 29.000 | |
|
Risna og gjafir
|
729 | 638 | 1.034 | 1.000 | |
|
Annar kostnaður
|
3.374 | 7.337 | 2.573 | 2.300 | |
|
(Endurgreiddur virðisaukaskattur)
|
-10.849 | -12.220 | -23.669 | -20.615 | |
|
Umsýslugjald til bankastofnana
|
0 | 0 | 36.400 | 0 | |
|
Undirbúningskostnaður Íbúðalánasjóðs
|
0 | 17.748 | 0 | 0 | |
|
Tækninýjungar og styrkir, framlag
|
8.294 | 15.169 | 15.000 | 15.000 | |
|
Afskriftir
|
16.427 | 19.919 | 22.000 | 22.000 | |
| Samtals
|
485.643 | 777.765 | 568.047 | 540.105 | |
| Tekjur - gjöld | -216.049 | -480.743 | -278.777 | -252.005 | |
Tafla 2. Fjöldi starfsmanna og stöðugilda
hjá Húsnæðisstofnun ríkisins og Íbúðalánasjóði.
| Starfsmenn | Stöðugildi | |
| Húsnæðisstofnun ríkisins | ||
| mars 1997 | 54 | 53,7 |
| nóvember 1997 | 54 | 52,7* |
| mars 1998 | 53 | 51,95 |
| nóvember 1998 | 50 | 49,5 |
| Íbúðalánasjóður | ||
| mars 1999 | 47 | 46 |
| nóvember 1999 | 59 | 58 |
| * Einn starfsmaður í launalausu leyfi. | ||