Ferill 298. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 514 — 298. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um greiðslur frá Íslenskri erfðagreiningu.
Frá Ögmundi Jónassyni.
1. Hvað hafa sjúkrastofnanir sem heyra undir heilbrigðisráðuneytið og starfsmenn þeirra fengið mikla fjármuni frá Íslenskri erfðagreiningu fyrir upplýsingar úr sjúkraskrám og öflun lífssýna?
2. Hvað felst í rannsóknarkostnaði sem ráðherra hefur upplýst að Íslensk erfðagreining greiði læknum og sjúkrastofnunum? Hvernig er hann skilgreindur og sundurliðaður? Um hvaða greiðslur aðrar er að ræða? Hvernig eru þær skilgreindar og sundurliðaðar?
Skriflegt svar óskast.