Ferill 279. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 553  —  279. mál.




Svar



viðskiptaráðherra við fyrirspurn Guðjóns A. Kristjánssonar um afkomu Landsbanka Íslands 1988–97.

    Svör við fyrirspurn þessari byggjast á upplýsingum sem ráðuneytinu bárust frá Landsbanka Íslands hf. og Fjármálaeftirlitinu. Hefur ráðuneytið leitað staðfestingar ríkisendurskoðanda á upplýsingunum, en hann er endurskoðandi bankanna og hafði auk þess með höndum yfirumsjón með lokauppgjöri ríkisviðskiptabankanna. Álit ríkisendurskoðanda er að fyrrgreindar upplýsingar séu áreiðanlegar og í samræmi við þær spurningar sem fram eru lagðar.
    Sérstaklega skal tekið fram að Landsbanki Íslands hf. er sjálfstætt fyrirtæki í eigu ríkisins og þúsunda einkaaðila. Bankinn starfar á samkeppnisgrundvelli og lýtur almennum reglum fjármagnsmarkaðarins, t.d. varðandi þagnarskyldu. Ekki er því unnt að veita upplýsingar sem eru til þess fallnar að rýra samkeppnisstöðu bankans á fjármálamarkaði eða ganga gegn þagnarskylduákvæði 43. gr. laga nr. 113/1996, um viðskiptabanka og sparisjóði. Þá lítur bankinn svo á að honum beri ekki skylda til að leggja út í verulegan kostnað við að afla þeirra upplýsinga sem óskað er eftir og veitir því eingöngu upplýsingar sem liggja fyrir með aðgengilegum hætti. Ber einnig að hafa í huga þau tímamörk sem sett eru varðandi skriflegar fyrirspurnir í 49. gr. laga um þingsköp Alþingis.

     1.      Hversu miklar voru afskriftir Landsbanka Íslands á árunum 1988–97, að báðum árum meðtöldum?
    Í svari Landsbanka Íslands hf. til ráðuneytisins kemur fram að bankinn telji að hér sé átt við afskriftir útlána frekar en afskriftir á fasta- og lausafjármunum, en hvorutveggja liggi fyrir í ársskýrslu bankans fyrir árin 1988–97. Í töflu hér að neðan er yfirlit um afskrifuð útlán, innkomin áður afskrifuð útlán og nettó afskrifuð útlán. Allar fjárhæðir eru í millj. kr. og byggjast á ársreikningi samstæðu bankans.

1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997
Afskrifuð lán
187 94 79 1.141 1.326 2.322 2.556 1.935 1.854 2.039
Innkomin áður
afskrifuð útlán

-36

-22

-73

-134

-63

-541
Nettó afskrifuð útlán
187 94 79 1.141 1.290 2.300 2.483 1.801 1.791 1.497
Heildarútlán í árslok
54.626 66.541 74.843 78.795 80.938 84.136 84.029 83.749 84.837 93.723
Afskrift af hlutfalli af
heildarútlánum í árslok

0,34%

0,14%

0,11%

1,45%

1,59%

2,73%

2,95%

2,15%

2,11%

1,60%



Prentað upp.

     2.      Hver var heildarafkoma bankans á þeim árum?
    Af hálfu bankans er talið að hér sé átt við hagnað ársins samkvæmt rekstrarreikningi árin 1988–97. Í töflu er yfirlit um hagnað fyrrgreindra ára.

1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997
Hagnaður ársins, millj. kr.
117
223 31 3 -2.733 43 22 177 262 326

     3.      Hvenær var stofnað til lánveitinga sem leiddu til þess taps sem olli afskriftunum 1988– 97, að báðum árum meðtöldum?
    Samkvæmt svari bankans til ráðuneytisins liggja þessar upplýsingar ekki fyrir með aðgengilegum hætti.

     4.      Hvert var heildartap bankans af rekstri Lindar hf.?
    Í svari bankans til ráðuneytisins er vísað til þess að spurningunni hafi verið svarað á þskj. 1422 á 122. löggjafarþingi.

5. Hvað fimm einstakar lánveitingar Lindar hf. leiddu til mesta taps bankans.
    Í svari bankans til ráðuneytisins kemur fram að vegna ákvæða um bankaleynd og þagnarskyldu sé ekki hægt að veita þessar upplýsingar.