Ferill 308. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 557 — 308. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um framkvæmd skattskila.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.
1. Hvað hefur ráðherra gert til að hrinda í framkvæmd tillögum nefndar um úrbætur við skattskil sem fram komu með skýrslu fjármálaráðherra á 120. löggjafarþingi um úttekt á afskrifuðum skattskuldum og snerta bókfærslu skattkrafna, áætlanir skattstjóra, reglur um afskriftir, skipulag innheimtumála, uppgjör gamalla skattskulda, gjaldþrot, búskipti og takmörkun atvinnuumsvifa vegna vanskila á sköttum?
Sérstaklega er spurt um eftirfarandi tillögur:
a. endurskoðun á verklagi við álagningu skatta samkvæmt áætlunum skattstjóra,
b. að afskrifa skattskuldir á grundvelli árangurslauss fjárnáms í stað þess að krefjast gjaldþrota hjá einstaklingum,
c. að takmarka atvinnuumsvif vegna vanskila á sköttum.
2. Er ráðherra reiðubúinn til að beita sér fyrir breytingum á reglum um frádrátt af launum gjaldenda vegna ógreiddra skatta sem heimila að haldið sé eftir allt að 75% af heildarlaunagreiðslu vegna skattskulda, þannig að tekið sé tillit til aðstæðna gjaldenda, t.d. framfærslukostnaðar og greiðslubyrði?
3. Hversu oft á sl. fjórum árum hafa innheimtumenn sett fram árangurslausar gjaldþrotakröfur út af skattskuldum einstaklinga og hve hátt hlutfall eru þær af heildargjaldþrotakröfum einstaklinga?
Skriflegt svar óskast.