Ferill 316. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 566  —  316. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um upplýsingamiðlun EFTA til væntanlegra ESB-landa.

Frá Össuri Skarphéðinssyni.



     1.      Hvernig hefur EFTA reynt að kynna væntanlegum aðildarlöndum Evrópusambandsins EES-samninginn?
     2.      Er fyrirhugað að gera átak af hálfu EFTA til að efla þekkingu þeirra á samningnum?
     3.      Mun utanríkisráðuneytið reyna sérstaklega að auka þekkingu og skilning viðkomandi landa á mikilvægi EES-samningsins fyrir Ísland? Ef svo er, hvernig?