Ferill 318. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 568  —  318. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um innherjaviðskipti.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Hvaða tilvik um innherjaviðskipti hafa verið til meðferðar hjá Fjármálaeftirlitinu og bankaeftirliti Seðlabankans frá gildistöku laga um verðbréfaviðskipti á árinu 1996?
     2.      Hver var niðurstaða Fjármálaeftirlitsins og bankaeftirlitsins í einstökum málum og til hvað aðgerða hefur verið gripið vegna þeirra?


Skriflegt svar óskast.