Ferill 335. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 587 — 335. mál.
Fyrirspurn
til landbúnaðarráðherra um átaksverkefni um framleiðslu og markaðssetningu vistvænna og lífrænna afurða.
Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.
1. Hvernig gengur vinna nefndar sem endurmeta á átaksverkefni um framleiðslu og markaðssetningu vistvænna og lífrænna afurða?
2. Er ljóst hvort um framhald átaksverkefnisins verður að ræða?
3. Hvaða verkefni voru unnin og/eða stofnað til í nafni átaksverkefnisins árin 1997, 1998 og 1999 og hver var kostnaður við hvert verkefni?
4. Hve miklum fjármunum var í heild varið til reksturs átaksverksefnisins árin 1997, 1998 og 1999, sundurliðað, sbr. 8. lið í svari á þskj. 1132 frá 121. löggjafarþingi, og hver er fjárhagsstaða verkefnisins nú?
5. Hver var þátttaka Framleiðnisjóðs landbúnaðarins eða annarra í átaksverkefninu árin 1997, 1998 og 1999?
6. Að hve miklu leyti hefur átakið snúist um aðrar afurðir en dilkakjöt?
7. Hefur einhver ályktun verið dregin af reynslunni af átaksverkefninu er varðar annars vegar vistvæna framleiðslu og hins vegar lífræna framleiðslu?
8. Að hvaða verkefnum er unnið á þessu ári í nafni átaksverkefnisins?
Skriflegt svar óskast.