Ferill 21. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 589  —  21. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breytingu á starfsheiti landslagshönnuða.

Frá iðnaðarnefnd.



     1.      Við 1. gr. Greinin orðist svo:
              Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:
                  a.      5. tölul. orðast svo: húsgagna- og innanhússarkitekta.
                  b.      7. tölul. orðast svo: landslagsarkitekta (landslagshönnuða) og.
     2.      Við 2. gr. Greinin orðist svo:
             Í stað orðanna „innanhússhönnuðir eða landslagshönnuðir“ í 2. mgr. 48. gr. laganna kemur: innanhússarkitektar eða landslagsarkitektar (landslagshönnuðir).
     3.      Við bætist ný grein er verði 3. gr. og orðist svo:
             Í stað orðanna „Innanhússhönnuðir og landslagshönnuðir“ í 4. mgr. 49. gr. laganna kemur: Innanhússarkitektar og landslagsarkitektar (landslagshönnuðir).