Ferill 340. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 593  —  340. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um framkvæmdir sveitarfélaga í fráveitumálum.

Frá Helgu Halldórsdóttur.



     1.      Hvernig standa framkvæmdir við fráveitur hjá einstökum sveitarfélögum, sbr. lög nr. 53 8. mars 1995, um stuðning við framkvæmdir sveitarfélaga í fráveitumálum?
     2.      Ætlar ráðuneytið að gera ráðstafanir til að hækka endurgreiðsluhlutfall til sveitarfélaga sem bera mestan kostnað á íbúa og ef svo er, verður það gert án þess að framlag til annarra sveitarfélaga skerðist?
     3.      Er mögulegt að hækka endurgreiðsluhlutfall ríkisins þau fimm ár sem eftir eru af framkvæmdatímanum sem miðað er við í lögunum?
     4.      Hefur ráðuneytið áætlanir um endurskoðun laganna?


Skriflegt svar óskast.