Ferill 348. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 601 — 348. mál.
Fyrirspurn
til iðnaðarráðherra um sölu Sementsverksmiðjunnar hf.
Frá Jóhanni Ársælssyni.
1. Eru enn uppi fyrirætlanir um að selja Sementsverksmiðjuna hf.? Ef svo er, hvenær er ætlunin að selja fyrirtækið?
2. Ætla stjórnvöld með einhverju móti að tryggja áframhaldandi framleiðslu sements á Íslandi við sölu fyrirtækisins? Ef svo er, með hvaða ráðum verður það gert?