Ferill 21. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 615  —  21. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á starfsheiti landslagshönnuða.

(Eftir 2. umr., 16. febr.)



Breyting á lögum nr. 8/1996, um löggildingu     nokkurra


starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum.


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:
     a.      5. tölul. orðast svo: húsgagna- og innanhússarkitekta.
     b.      7. tölul. orðast svo: landslagsarkitekta (landslagshönnuða) og.

Breyting á lögum nr. 73/1997, skipulags- og byggingarlögum.


2. gr.

    Í stað orðanna „innanhússhönnuðir eða landslagshönnuðir“ í 2. mgr. 48. gr. laganna kemur: innanhússarkitektar eða landslagsarkitektar (landslagshönnuðir).

3. gr.

    Í stað orðanna „Innanhússhönnuðir og landslagshönnuðir“ í 4. mgr. 49. gr. laganna kemur: Innanhússarkitektar og landslagsarkitektar (landslagshönnuðir).

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.