Ferill 375. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 631  —  375. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um niðurstöður starfshóps um vinnslu kaplamjólkur.

Frá Össuri Skarphéðinssyni.



     1.      Hvenær og með hvaða hætti skilaði starfshópur sem ráðherra skipaði 12. janúar 1996 til að kanna möguleika á vinnslu og nýtingu kaplamjólkur niðurstöðum sínum?
     2.      Hvað hélt hópurinn marga fundi?
     3.      Hver var heildarkostnaðurinn af störfum hans?
     4.      Hverjar voru helstu niðurstöður starfshópsins?


Skriflegt svar óskast.

























Prentað upp.