Ferill 310. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 638  —  310. mál.




Svar



heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Guðmundar Hallvarðssonar um tóbaksvarnir.

     1.      Hverjar voru tekjur tóbaksvarnanefndar, sbr. 15. gr. laga um tóbaksvarnir, nr. 74/1984, með síðari breytingum, á árunum 1997 og 1998?
    Samkvæmt 15. gr. laga um tóbaksvarnir, nr. 74/1984, er skylt að verja a.m.k. 0,7% af brúttósölu tóbaks til tóbaksvarnastarfs. Samkvæmt fjárlögum hafði tóbaksvarnanefnd 31.000.000 kr. til ráðstöfunar árið 1997 og fékk 3.481.000 kr. á fjáraukalögum vegna aukinnar tóbakssölu það ár.
    Samkvæmt fjárlögum árið 1998 hafði tóbaksvarnanefnd 35.000.000 kr. til ráðstöfunar og fékk 4.800.000 kr. á fjáraukalögum.
    Samkvæmt fjárlögum árið 1999 hafði tóbaksvarnanefnd 36.100.000 kr. til ráðstöfunar en mun sækja um 4.859.000 kr. á fjáraukalögum.

     2.      Hvernig hefur þessum tekjum verið varið?
    Tekjum tóbaksvarnanefndar hefur verið varið á eftirfarandi hátt (upphæðir í millj. kr.):
Viðfang 1997 1998 1999
Rekstur skrifstofu
1,6 1,6 1,4
Framkvæmdastjóri,
önnur aðkeypt sérfræðiþjónusta
5,2 6,2 7,5
Prentun, dreifing o.fl.
1,2 1,5 1,7
Birtingar í fjölmiðlum, hönnun og kostnaður
9,0 7,5 8,3
Almennur áróður og fræðsla
4,0 3,1 1,2
Fjölbreytt samstarfsverkefni
5,0 4,5 3,5
Styrkir til tóbaksvarnarannsókna o.fl.
2,5 8,5 1,5
Kannanir Hagvangs, héraðslækna o.fl.
0,6 0,7 1,1
Skólafræðslan, nýtt kennsluefni
7,4 10,2 8,2
Ráðstefnur, fundir, ferðir og dagpeningar
2,0 1,5 1,1
Reyklaus dagur
2,1 1,0 4,8

     3.      Hvernig hefur verið staðið að fræðslustarfsemi, sbr. 14. gr. fyrrnefndra laga?
    Í ársbyrjun 1997 ákvað tóbaksvarnanefnd, í samráði við Krabbameinsfélag Reykjavíkur, að umbylta tóbaksvarnafræðslu í grunnskólum sem hafði fram til þess tíma verið í formi einnar heimsóknar fræðslufulltrúa Krabbameinsfélagsins í hvern bekk — svo fremi sem áhugi skóla væri fyrir hendi. Ráðist var í útgáfu á náms- og fræðsluefninu ,,Sköpum reyklausa kynslóð“ en um er að ræða kennsluefni frá Noregi og Svíþjóð ætlað nemendum í 6.–10. bekk. Námsefnið, sem spannar 5–7 kennslustundir í fyrrgreindum árgöngum, er eftirfarandi: Tóbakið og þú, námsefni 6. bekkjar, Reyklaus – að sjálfsögðu, námsefni 7. bekkjar, Vertu frjáls – reyklaus, námsefni 8. bekkjar, Vertu frjáls – reyklaus, á þinn hátt, námsefni 9. bekkjar og Vertu frjáls – reyklaus, sendu skýr skilaboð, námsefni 10. bekkjar.
    Í hverjum einasta grunnskóla landsins eru fræðslu- og kennslugögnin því fyrirliggjandi en því miður getur verið misbrestur á því að þau séu notuð. Veturinn 1997–1998 var námsefnið tekið fyrir í rúmlega 70% grunnskólanna en í rúmlega 50% skólanna veturinn 1998– 1999. Kennurum hefur staðið til boða að sækja námskeið, þeim alfarið að kostnaðarlausu, til að vera betur í stakk búnir til að kenna námsefnið.
    Tóbaksvarnanefnd hefur lagt rúmlega 10 millj. kr. í þetta námsefni á hverju ári og Krabbameinsfélagið um 5 millj. kr. að auki.
    Tóbaksvarnanefnd hefur leitað eftir áliti menntamálaráðuneytis á ákvæði í 14. gr. tóbaksvarnalaga sem fjallar um tóbaksvarnafræðslu í skólum landsins. Í síðasta bréfi frá menntamálaráðuneytinu til nefndarinnar vísaði ráðuneytið í námsefni í lífsleikni sem er að finna í nýrri aðalnámskrá grunnskólanna. Það er álit nefndarinnar að námsefni í lífsleikni sé brýnt m.a. fyrir tóbaksvarnafræðslu en rúmi ekki fræðsluna nema að takmörkuðu leyti. Mikilvægt er að koma í veg fyrir að börn og unglingar hefji reykingar og full ástæða til að fastir tímar til tóbaksvarna fari sérstaklega inn í aðalnámskrá.
    Námsefnið sem tilheyrir lífsleikni er mjög fjölbreytilegt og er skólunum í sjálfsvald sett hvaða námsefni í lífsleikni þeir kjósa að kenna svo fremi að þeir telji að þau nái fram markmiðum aðalnámskrár. Það virðist því háð ákvörðun hvers skóla hvort tóbaksvarnakennsla fer fram eða ekki og því spurning hvort grunnskólanemendum sé ekki mismunað. Börn geta hæglega lokið grunnskólaprófi án þess að hafa fengið nokkra fræðslu um skaðsemi tóbaks. Reykingar eru mesta heilbrigðisvandamál þjóðarinnar. Í ljósi þess að rúmlega 80% reykingamanna ánetjast tóbaki fyrir 18 ára aldur er mjög mikilvægt að fræðsla um skaðsemina berist öllum ungmennum fyrir þann aldur.
    Auk framangreinds námsefnis fá reyklausir 8., 9. og 10. bekkir viðurkenningarskjal og liðlega 500 reyklausir nemendur í þeim bekkjum fá armbandsúr í viðurkenningarskyni.
    Þess má einnig geta að síðastliðið haust tók Ísland í fyrsta skipti, fyrir tilstuðlan tóbaksvarnanefndar og Krabbameinsfélags Reykjavíkur, þátt í Evrópusamkeppni meðal reyklausra 7. og 8. bekkja en alls taka 14 Evrópuþjóðir þátt í samkeppninni. Rúmlega 320 reyklausir bekkir skráðu sig til þátttöku á Íslandi og þurfa þeir mánaðarlega að senda inn staðfestingu á reykleysi nemenda. Bekkirnir þurfa að skila verkefni í anda tóbaksvarna til að eiga möguleika á að vinna til verðlauna vorið 2000. Heill bekkur auk kennara vinnur ferð til Berlínar en auk þess verður helgarferð fyrir heilan bekk í verðlaun, dagsferðir fyrir tíu bekki, geislaspilarar og fleira. Mikil ánægja er með þessa keppni. Tóbaksvarnanefnd ákvað að hrinda keppninni af stað á Íslandi í von um að skólarnir mundu sjá sér leik á borði og kenna námsefnið samhliða því að virkja nemendur í tóbaksvörnum.
    Aukinheldur er mjög brýnt að leggja áherslu á tóbaksvarnafræðslu í skólum sem mennta fólk til starfa að uppeldis-, fræðslu- og heilbrigðismálum. Það mundi spara mikla fyrirhöfn ef kennaranemar fengju kennslu í námsefninu í Kennaraháskólanum og sömuleiðis nemendur í heilbrigðisfræðum.
    Auk þessarar miklu áherslu á fræðslu í skólum hefur heilbrigðisráðuneytið og tóbaksvarnanefnd styrkt námskeið fyrir heilbrigðisstarfsmenn í öllum landsfjórðungum. Einnig var Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands styrkt á árinu 1998 til að koma á fót meðferð fyrir þá sem vilja hætta reykingum.