Ferill 383. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 641 — 383. mál.
Fyrirspurn
til umhverfisráðherra um áhrif framræslu á fuglalíf.
Frá Össuri Skarphéðinssyni.
1. Hvaða fuglategundir hafa horfið úr röðum íslenskra varpfugla við framræslu votlendis?
2. Hverjar eiga nú í vök að verjast af þeim sökum?
3. Hefur röskun á votlendi breytt útbreiðslu og stofnstærð þeirra hérlendis að öðru leyti?
Skriflegt svar óskast.