Ferill 391. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 649  —  391. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um rannsókn á mengun í jarðvegi og grunnvatni við Keflavíkurflugvöll.

Flm.: Sigríður Jóhannesdóttir, Steingrímur J. Sigfússon.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gangast fyrir rannsókn á umfangi mengunar í jarðvegi og grunnvatni frá „varnarsvæðinu“ við Keflavíkurflugvöll.

Greinargerð.


    Þingsályktunartillaga hliðstæð þessari hefur verið flutt áður á Alþingi og ekki náð fram að ganga. Í tengslum við tillöguna er lögð fram önnur þingsályktunartillaga þar sem lagt er til að umhverfisáhrif af völdum erlendrar hersetu á Íslandi verði rannsökuð. Steingrímur J. Sigfússon er fyrsti flutningsmaður hennar en flutningsmaður þessarar tillögu er þar meðflutningsmaður.
    Á undanförnum árum hafa verið dregin fram í dagsljósið fjölmörg mengunarslys sem orðið hafa í nágrenni herstöðva víða um heim frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Vegna fákunnáttu voru menn lengi vel ekki á varðbergi og með ýmsu móti, jafnvel af ásetningi, fóru niður í jarðveg efni eins og afísingarefni, ýmiss konar hreinsiefni svo sem hið stórhættulega leysiefni tríklóretýlen, TCE, hið baneitraða PCE, úrgangsolíur, slökkviefni, rafgeymaleifar (blý og sýra), spennaolía, sem stundum innihélt PCB, málningarleifar, málmhúðunarleifar, þotueldsneyti og ýmislegt annað miður geðslegt. Áður fyrr vildu menn umfram allt skjótvirk efni en voru ekki alltaf meðvitaðir um skaðsemi þeirra.
    Nú er brýn nauðsyn á að safnað verði allri fáanlegri vitneskju um þá staði sem kunna að vera hættusvæði meðan enn eru á lífi menn sem hafa unnið við herstöðina frá upphafi og búa yfir vitneskju um hvar slík eiturefni hafa verið urðuð eða farið niður fyrir slysni eða gáleysi. Í framhaldi af því verði svo kortlögð sú vitneskja sem fæst og nákvæm efnagreining gerð á þeim jarðvegi sem óttast er að sé mengaður.
    Meðan niðurstaða slíkrar könnunar liggur ekki fyrir getum við aðeins borið aðstæður hér saman við þær sem nú eru þekktar frá öðrum herstöðvum þar sem slíkar rannsóknir hafa verið gerðar, t.d. í Þýskalandi, á Guam og Filippseyjum, en þar hafa víða komið fram alvarleg mengunartilfelli og þurft hefur að leggja í mikinn kostnað við hreinsun jarðvegs
    Þess má geta að í sýnum sem tekin hafa verið á Heiðarfjalli, þar sem ratsjárstöð var þó aðeins rekin í 15 ár, hefur greinst töluvert af baneitruðum þungmálmum, t.d. kadmíum, krómi, blýi og nikkel.
    Árið 1989 lét bandaríski herinn gera mælingar á grunnvatnssýnum sem tekin voru á svæðum sem á kortum í fylgiskjali eru merkt með svörtum punktum. Rannsóknin tók aðeins til tveggja hættulegra efna, TCE, eða tríklóretýlen, og PCE, eða perklóretýlen. Rannsóknin leiddi í ljós að efnið tríklóretýlen fannst þá á útbreiddu svæði við flugvöllinn og víða yfir hættumörkum, m.a. við þáverandi vatnsból Njarðvíkinga og hersins, eins og marka má af korti 1. Efnið TCE er talið geta valdið ýmsum alvarlegum sjúkdómum, svo sem hjartagöllum, og vera krabbameinsvaldandi. Hitt efnið sem rannsakað var, perklóretýlen (PCE), sem er baneitrað, fannst einnig í nokkrum mæli í grunnvatnssýnum. Efni sem þessi eyðast ekki. Það verður að hreinsa jarðveginn, annars breiðast þau sífellt meira út.
    Það má ljóst vera að leiði niðurstaða jarðvegs- og grunnvatnsrannsókna í ljós að á svæðinu fyrirfinnist eiturefni í einhverjum mæli verður að gera þá kröfu að herinn hreinsi upp eftir sig áður en lengra er haldið. Þessi krafa á í raun ekki aðeins við um Suðurnes heldur og aðra staði á Íslandi þar sem herinn hefur haft umsvif.
    Þess má geta að á undanförnum árum hafa þýsk yfirvöld gert l.595 skaðabótakröfur á hendur Bandaríkjaher vegna mengunar frá herstöðvum í Þýskalandi og þegar hafa verið greiddar skaðabætur vegna 1.072 þessara mála.
    Nýlega hefur það gerst að bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ treystu sér ekki til að taka við svæði sem herinn vildi skila, þ.e. svokölluðu Nickel-svæði sem liggur að Keflavík, vegna gruns um mikla mengun á svæðinu. Herinn neitaði að fjármagna rannsókn á svæðinu svo að utanríkisráðuneytið tók að sér að tryggja fjármögnun á rannsókn á jarðvegssýnum sem tekin voru á umræddu svæði. Í ljós kom að sýnin voru mikið menguð af olíu hvers konar og einnig var nokkur blýmengun á afmörkuðum svæðum. Mikilvægt er að samningar takist um að herinn hreinsi þarna upp eftir sig áður en tekið verður við þessu landi. Engar rannsóknir voru gerðar nú á grunnvatni á þessu svæði en víst er að það er mengað eins og rannsóknin frá l989 benti til.
    Í bandarískum lögum er kveðið á um að Bandaríkjamenn fari að kröfum viðkomandi þjóðar í umhverfismálum. Okkur ber því að gæta hagsmuna þegna okkar, krefjast þess að þessi mál verði rannsökuð og viðeigandi ráðstafanir gerðar til úrbóta svo að landið verði aftur nýtanlegt.
    Í fylgiskjali eru kort gerð á vegum Bandaríkjahers árið 1989 yfir útbreiðslu eiturefnanna TCE og PCE í grunnvatni á Keflavíkurflugvallarsvæðinu.



Fylgiskjal.

Kort 1. Keflavíkurflugvöllur, TCE-mengun í grunnvatni.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.







Kort 2. Keflavíkurflugvöllur, PCE-mengun í grunnvatni.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.