Ferill 372. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 685  —  372. mál.



Svar



viðskiptaráðherra við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar um innflutning á skordýraeitri.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Liggja fyrir einhverjar upplýsingar um innflutning á DDT eða öðrum tegundum skordýraeiturs sem innihalda lífræn þrávirk efni á árabilinu 1950–60?
     2.      Ef svo er, hve mikið magn var flutt inn á tímabilinu og til hvaða verkefna?

    Í viðskiptaráðuneytinu er ekki að finna gögn um innflutning á DDT né öðru skordýraeitri á umræddu árabili. Leitað var til Hagstofu Íslands um upplýsingar úr innflutningsskýrslum frá þessum árum og eru þær meðfylgjandi. Jafnframt var leitað til eiturefnaeftirlits Hollustuverndar ríkisins þar sem þær upplýsingar fengust að innflutningur á skordýraeitri hafi ekki verið háður sérstökum leyfum á þessum tíma og því liggi ekkert fyrir um notkun slíkra efna þá.
    Hagstofa Íslands tók saman upplýsingar úr innflutningsskýrslum frá þessum tíma. Rétt er að taka fram að í þeim ekki sundurliðað hvers konar skordýraeitur hefur verið flutt inn, ein ungis er greint hvert innflutt magn hefur verið af skordýraeitri og fleiri efnum sem falla undir ákveðna vörutegund.
    1950: Flokkað samkvæmt vöruskrá Þjóðabandalagsins gamla með sérstakri sundurliðun frá 1947.

Vörutegund 124.d Sótthreinsunarefni, meindýraeitur o.fl.

Ár Þyngd, tonn
1949 65,1
1950 30,8
1951 93,0

    1952: Ný flokkun vörutegunda í verslunarskýrslum (Standard International Trade Classi fication (SITC)). Sótthreinsunarefni til varnar gegn og útrýmingar á skordýrum, illgresi og sveppum, svo og rottueitur.

Vörutegund 599-2.

Ár Þyngd, tonn
1952 75,1
1953 126,7
1954 152,9
1955 145,7
1956 125,6
1957 108,2
1958 93,5
1959 166,4
1960 147,1