Ferill 428. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 693  —  428. mál.



Frumvarp til laga



um breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum.

Flm.: Kolbrún Halldórsdóttir, Þuríður Backman.



1. gr.

    206. gr. laganna orðast svo:
    Hver sem greiðir fyrir kynlífsþjónustu af einhverju tagi skal sæta fangelsi allt að 4 árum.
    Hver sem hefur atvinnu eða viðurværi sitt af lauslæti annarra skal sæta fangelsi allt að 6 árum.
    Sömu refsingu varðar það að ginna, hvetja eða aðstoða barn, yngra en 18 ára, til þess að hafa viðurværi sitt af lauslæti.
    Sömu refsingu varðar það einnig að stuðla að því að fólk sé flutt úr landi eða til landsins í því skyni að það taki þátt í hvers kyns klám- eða vændisiðnaði hvort sem viðkomandi er kunnugt um þennan tilgang fararinnar eða ekki og hvort sem samþykki viðkomandi liggur fyrir eða ekki.
    Hver sem stuðlar að því með ginningum, hvatningum eða milligöngu að aðrir hafi holdlegt samræði eða önnur kynferðismök gegn greiðslu eða gerir sér lauslæti annarra að tekjulind, svo sem með útleigu húsnæðis eða öðru, skal sæta fangelsi allt að 4 árum en sektum eða fangelsi allt að 1 ári ef málsbætur eru.
    Hver sem býður upp á kynferðislegar nektarsýningar og hefur þar með nekt annarra sér að féþúfu og til sölu skal sæta allt að 4 ára fangelsi. Sömu refsingu varðar það að skipuleggja og reka kerfisbundna klámþjónustu gegnum síma eða tölvur.

2. gr.

    210. gr. laganna orðast svo:
    Ef klám birtist á prenti skal sá sem ábyrgð ber á birtingu þess eftir prentlögum sæta sektum eða fangelsi allt að 1 ári.
    Sömu refsingu varðar það þann sem er ábyrgur fyrir að auglýsa í fjölmiðlum eða á opinberum vettvangi aðgang að klámi í hvaða mynd sem það er fram borið. Sömu refsingu varðar einnig að búa til eða flytja inn í útbreiðsluskyni, selja, útbýta eða dreifa á annan hátt út klámritum, klámmyndum eða öðrum slíkum hlutum eða hafa þá opinberlega til sýnis, svo og að efna til opinbers fyrirlestrar eða leiks sem er ósiðlegur á sama hátt. Þegar slíkt efni sýnir börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt getur refsing þó orðið fangelsi allt að 2 árum.
    Það varðar enn fremur sömu refsingu að láta af hendi við börn, yngri en 18 ára, klámrit, klámmyndir eða aðra slíka hluti.


Prentað upp.

    Hver sem flytur inn eða hefur í vörslu sinni ljósmyndir, kvikmyndir eða sambærilega hluti sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt skal sæta sektum. Sömu refsingu varðar að flytja inn eða hafa í vörslu sinni ljósmyndir, kvikmyndir eða sambærilega hluti sem sýna börn í kynferðisathöfnum með dýrum eða nota hluti á klámfenginn hátt.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Að undanförnu hafa miklar umræður orðið í íslensku samfélagi um klám og kynlífsþjónustu og þykir flestum mikilvægt að nú þegar verði brugðist við.
    Samkomustaðir, svokallaðir nektardansstaðir, hafa skotið upp kollinum bæði í Reykjavík og annars staðar á landinu. Mikilvægt er að takmarka eða koma í veg fyrir starfrækslu slíkra staða hérlendis, enda þykir líklegt að á þeim eða í tengslum við þá sé stundað vændi í einhverjum mæli þótt ekki liggi fyrir neinar skjalfestar sannanir í því efni. Þá hefur vakið athygli hvernig viðgengist hafa alls kyns auglýsingar, t.d. í dagblöðum, um ýmiss konar kynlífsþjónustu. Enn má nefna að á netinu er alls kyns auglýsingarstarfsemi fyrir klámþjónustu, auk þess sem talið er að í tengslum við ákveðnar vefsíður sé stundað skipulagt vændi.
    Með breytingum sem hér er lagt til að gerðar verði á almennum hegningarlögum er lögð áhersla á að refsingar við brotum sem hér er fjallað um beinist að þeim sem kaupa kynlífsþjónustu hvers konar eða hafa líkama annarra sér að féþúfu. Sömuleiðis er hér leitast við að stemma stigu við þeirri opinberu og ógeðfelldu klámþjónustu sem greinilega er stunduð á vegum símafyrirtækja og mikið auglýst í fjölmiðlum, bæði prentmiðlum og á öldum ljósvakans. Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir að frumvarp til laga um breytingu á 210. gr. laganna (359. mál) sem liggur fyrir og bíður afgreiðslu alþingis verði samþykkt, en þar er gert ráð fyrir hertum ákvæðum er varða refsingar við að flytja inn eða hafa í vörslu sinni barnaklám hvers konar.
    Samkvæmt leiðbeinandi reglum sem jafnréttisnefnd Evrópuráðsins og ráðherranefnd þess hafa nýlega afgreitt telst mansal til kynlífsþrælkunar eða kynlífsmisnotkunar vera til staðar „þegar einstaklingur, lögpersóna og/eða samtök útvega og/eða flytja innan lands eða milli landa á löglegan eða ólöglegan hátt einstaklinga, jafnvel með samþykki þeirra, í þeim tilgangi að nýta þá kynferðislega í gróðaskyni og beita til þess meðal annars þvingunum, einkum ofbeldi eða hótunum, blekkingum og misnotkun valds eða misnota sér bága stöðu einstaklinganna.“ (Elsa Þorkelsdóttir, Mansal, erindi flutt á fræðslufundi undir yfirskriftinni Mansal — kynlífsþrælkun — staðreynd eða upphrópun á Íslandi, á Hótel Borg, 8. febrúar 2000.)
    Kaup á kynlífi og kynlífsþjónustu er því gróf valdbeiting, kynferðislegt ofbeldi, þar sem valdastaða þess sem kaupir, selur eða hefur milligöngu um þjónustuna er staða hins sterka. Þá er þess einnig að geta að talið er að verslun með konur til kynlífsþrælkunar sé oftast tengd annarri glæpastarfsemi, svo sem eiturlyfjasmygli, peningaþvætti og öðrum ólöglegum athöfnum. Mikilvægt að nú þegar verði tryggt í íslenskri hegningarlöggjöf að á slíkum glæpum verði tekið af festu.
    Afleiðingar vændis eða sölu hvers kyns kynlífsþjónustu eru iðulega mjög svipaðar og hjá öðrum þolendum kynferðisofbeldis, þ.e. brotin sjálfsmynd, sjálfsfyrirlitning, þunglyndi, sjálfsvígsþankar og tilraunir til sjálfsvíga. Ótal kannanir hafa einnig sýnt að konur sem selja líkama sinn eru að stórum hluta konur sem beittar hafa verið kynferðisofbeldi í bernsku og hafa því alla tíð staðið höllum fæti í lífinu. Á síðari árum hafa fátækt og litlar vonir um mannsæmandi framtíð einnig knúið fólk til vændis og auðveldað þannig þeim sem kaupa kynlífsþjónustu eða gerast milligöngumenn um slíkt að ná valdi yfir þeim.
    Í grein eftir Áshildi Bragadóttur stjórnmálafræðing (Vera, 1. tbl. 2000) kemur fram að þótt ekki sé hægt með neinni vissu að alhæfa um útbreiðslu vændis hér á landi sé líklegt að vændi sé stundað hér, enda hafi nokkrir tugir einstaklinga sem stundað hafa vændi leitað til Stígamóta, samtaka kvenna gegn kynferðislegu ofbeldi.
    Í greininni er að finna fimm skilgreiningar á vændi sem fullyrt er að stundað sé hér á landi Í fyrsta lagi kemur fram að hér á landi eru starfrækt vændishús „þar sem einn aðili á eða stjórnar starfseminni, tekur á móti pöntunum og útvegar viðskiptavinum hold. Vændið fer ýmist fram innan veggja vændishússins, á hótelum, vinnustöðum viðskiptavinarins eða heimili hans.“ Í öðru lagi kemur fram að eigendur eða rekstraraðilar ákveðinna veitingahúsa hafi tekið að sér að vera milliliðir viðskiptavinarins og þess sem „seldi sig“. Í þriðja lagi er nefnd svonefnd fylgiþjónusta. Í fjórða lagi er talað um vændi þar sem karlmenn „gera skipulega út á konur“. Í fimmta lagi kemur fram í áðurnefndri grein Áshildar Bragadóttur að hér á landi þrífist það sem hún nefnir „tilviljanakennt götuvændi“.
    Íslensk stjórnvöld hafa undirritað mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna frá 1948 og þar með undirgengist m.a. að banna að hneppa menn í þrældóm eða nauðungarvinnu og banna þrælahald og þrælaverslun, hverju nafni sem hún nefnist. Þá eru í samningi Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum ákvæði þess efnis að aðildarríkin skuli gera allar viðeigandi ráðstafanir, þar á meðal staðfesta lagasetningu til þess að hamla gegn hvers konar verslun með konur og gróðastarfsemi sem tengist vændi kvenna.
    Frumvarpið leggur til afgerandi breytingar á almennum hegningarlögum til þess að bregðast við þeirri óæskilegu þróun sem orðið hefur í þessum efnum hér á landi sem víða annars staðar. Texti frumvarpsgreinanna skýrir sig að mestu leyti sjálfur en vert er að vekja athygli á þeirri áherslu sem lögð er á að draga notendur kynlífsþjónustu til ábyrgðar ekki síður en seljendur hennar.
    Í umræðum um þessi mál á Alþingi nú á haustþingi var samdóma álit þingmanna sem tóku til máls að stemma þyrfti stigu við klám- og vændisiðnaði sem virðist hafa haslað sér völl á Íslandi. Klámiðnaður, sala kynlífsþjónustu og vændi á ekki undir neinum kringumstæðum að leyfast á Íslandi. Með þeim breytingum sem hér eru lagðar til á almennum hegningarlögum yrði sú afstaða fullkomlega ljós í íslenskum lögum.