Ferill 308. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 700  —  308. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um framkvæmd skattskila.

     1.      Hvað hefur ráðherra gert til að hrinda í framkvæmd tillögum nefndar um úrbætur við skattskil sem fram komu með skýrslu fjármálaráðherra á 120. löggjafarþingi um úttekt á afskrifuðum skattskuldum og snerta bókfærslu skattkrafna, áætlanir skattstjóra, reglur um afskriftir, skipulag innheimtumála, uppgjör gamalla skattskulda, gjaldþrot, búskipti og takmörkun atvinnuumsvifa vegna vanskila á sköttum?
            Sérstaklega er spurt um eftirfarandi tillögur:
                  a.      endurskoðun á verklagi við álagningu skatta samkvæmt áætlunum skattstjóra,
                  b.      að afskrifa skattskuldir á grundvelli árangurslauss fjárnáms í stað þess að krefjast gjaldþrota hjá einstaklingum,
                  c.      að takmarka atvinnuumsvif vegna vanskila á sköttum.

    Í kjölfar skýrslu til Alþingis um afskriftir skattskulda skipaði fjármálaráðherra með bréfi, dags. 2. júní 1997, nefnd til að leggja drög að nýjum verklagsreglum við afskriftir skattkrafna. Skyldu reglur þessar lúta að efnislegum skilyrðum afskrifta og stjórnsýslulegri framkvæmd við afskriftir. Við tillögugerðina skyldi nefndin sérstaklega gæta þess að með reglunum yrði jafnræði gjaldenda tryggt eins og kostur væri. Skyldi nefndin m.a. taka eftirfarandi atriði til athugunar og úrlausnar:
     1.      Hvort mismunandi reglur eigi að gilda um afskriftir eftir skatttegundum (gjaldflokkum).
     2.      Æskilegt er að sem mest verði dregið úr því að einstaklingar séu gerðir gjaldþrota. Athugað verði hvort og þá með hvaða hætti megi byggja afskriftir á árangurslausu fjárnámi.
     3.      Skattskuldir, sem ekki hafa verið afskrifaðar við gjaldþrot, eru innheimtar hjá skuldara. Nefndin geri tillögu um hvernig að slíkri innheimtu skuli staðið, m.a. hvort gera skuli kröfu til launagreiðanda um afdrátt af launum skuldara af þessum ástæðum.
     4.      Skuldir sem stafa af atvinnurekstri eru afskrifaðar við gjaldþrot lögaðila en eru til áframhaldandi innheimtu hafi þær myndast í atvinnurekstri einstaklings. Nefndin geri tillögur um reglur sem leiði til meira samræmis hvað varðar afskriftir af skattakröfum vegna atvinnurekstrar hjá lögaðilum og einstaklingum í atvinnurekstri.
    Nefndin hefur skilað tillögum sínum til ráðherra og er nú verið að skoða frekar þær hugmyndir sem þar eru settar fram. Áætlar ráðuneytið að ljúka því starfi á allra næstu vikum. Með skipulagsbreytingum á embætti tollstjórans í Reykjavík hefur ýmsum af þessum hugmyndum þegar verið hrint í framkvæmd með breyttum verklagsreglum og nýjum vinnuaðferðum, sbr. umfjöllun hér á eftir.
    Skal nú vikið lauslega að einstökum þáttum fyrsta töluliðar fyrirspurnarinnar, en um bókfærslu ríkistekna vísast til yfirstandandi vinnu ráðuneytisins.

a. Áætlanir skattstjóra.
    Skv. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, skal skattstjóri, ef skattaðili telur eigi fram innan tilskilins framtalsfrests, áætla tekjur skattaðila og eign og ákvarða skatta hans í samræmi við þá áætlun. Hvað varðar skráða aðila sem stunda virðisaukaskattsskylda starfsemi ber skattstjóra að áætla skatt af viðskiptum þeirra sem ekki senda skýrslur innan tilskilins tíma, senda enga skýrslu eða ef skýrsla eða fylgigögnum er ábótavant, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum. Í báðum tilvikum ber skattstjóra að áætla svo ríflega að eigi sé hætta á að fjárhæðir séu áætlaðar lægri en þær eru í raun og veru. Innheimtumönnum ríkissjóðs ber að innheimta skattkröfur sem byggjast á áætlunum með sama hætti og aðrar skattkröfur.
    Hjá ráðuneytinu, í samráði við undirstofnanir, er verið að skoða hvernig unnt er að bæta verklag við áætlanir skatta og munu tillögur væntanlega liggja fyrir með vorinu.

b. Afskriftareglur.
    Þegar um er að ræða einstaklinga utan atvinnurekstrar sem skulda opinber gjöld er samkvæmt núverandi afskriftarfyrirkomulagi í flestum tilvikum látið staðar numið við árangurslaust fjárnám hjá gjaldanda sem fullnægjandi innheimtutilraun áður en innheimtumaður óskar eftir afskrift kröfu. Það er þó skilyrði að gjaldandi hafi mætt við fyrirtöku fjárnáms og lýst yfir eignaleysi. Telji innheimtumaður vafa leika á eignaleysi eða að gjaldandinn hafi gert tilraun til að skjóta undan eignum skal hann hins vegar óska eftir gjaldþrotaskiptum á búi viðkomandi gjaldanda áður en óskað er eftir afskrift kröfu.
    Skuldir sem stofnað er til í atvinnurekstri eru einvörðungu afskrifaðar að undangengnum gjaldþrotaskiptum. Í rökstuðningi fyrir afskrift þarf innheimtumaður að taka fram hvenær skiptum lauk og með hvaða hætti. Ef um er að ræða háar skattskuldir getur afskriftarnefnd þó fallist á afskrift í undantekningartilvikum enda liggi fyrir yfirlýsing frá bústjóra um eignarleysi búsins og að ekkert muni fást upp í kröfurnar.
    Í núgildandi afskriftareglum er gert ráð fyrir skuldajöfnuði inneigna gjaldanda upp í vangoldnar skattskuldir hans á meðan að kröfurnar eru ófyrndar. Afskriftarnefnd samþykkir ekki afskrift skattskulda ef unnt er að skuldajafna væntanlegum inneignum hans upp í hin vangoldnu gjöld.
    Þess má geta að 1. júlí 1998 tók til starfa innan innheimtusviðs tollstjórans í Reykjavík sérstök milliinnheimtudeild. Hlutverk hennar er að tilkynna gjaldendum um vanskil og gefa þeim kost á að leysa sín mál án þess að grípa þurfi til kostnaðarsamra innheimtuaðgerða. Starfsmenn deildarinnar veita upplýsingar og aðstoða gjaldendur eins og kostur er áður en gripið er til fjárnáms eða stöðvunar atvinnurekstrar.

c. Takmörkun atvinnuumsvifa .
    Samkvæmt almennum reglum skaðabótaréttar geta forsvarsmenn hlutafélaga orðið skaðabótaskyldir ef þeir með saknæmum hætti vanrækja þá skyldu sína að gefa hlutafélag upp til gjaldþrotaskipta. Engin almenn og sjálfvirk ákvæði takmarka rétt til atvinnuumsvifa eftir gjaldþrot. Hins vegar eru dæmi um að opinber starfsleyfi séu felld úr gildi ef viðkomandi er í vanskilum með skatta sína.
    Innheimtumönnum ríkissjóðs er lögum samkvæmt heimilt að stöðva atvinnurekstur gjaldanda vegna vanskila tiltekinna gjalda. Samkvæmt upplýsingum sem fengust frá embætti tollstjórans í Reykjavík liggur þó fyrir að stöðvun atvinnurekstrar var tiltölulega sjaldan beitt, sbr. neðangreint yfirlit fengið frá tollstjóranum í Reykjavík yfir stöðvun atvinnurekstrar gjaldenda vegna vanskila á vörslusköttum árið 1999.

Fjöldi
Aðilar sem greiddu samkvæmt greiðsluáskorun áður en kom til stöðvunar
9.612
Aðilar sem lentu á aðgerðarlista (lokunarlista)
547
Aðilar sem sömdu um greiðslu áður en kom til stöðvunar
56
Aðilar sem fundust ekki eða ekki var hægt að loka hjá
181
Aðilar sem gerðu upp vanskil þegar lokun átti að fara fram
104
Innsiglanir
14
Mál í vinnslu um áramót
1.800

    Hjá ráðuneytinu eru nú til skoðunar tillögur er lúta að frekari takmörkunum atvinnuusvifa þeirra er skulda skatta, einkum virðisaukaskatt.

d. Skipulag innheimtumála .
    Tollstjórinn í Reykjavík tók við innheimtu opinberra gjalda af Gjaldheimtunni í Reykjavík 1. janúar 1998, en síðarnefnda embættið var á sama tíma lagt niður. Með auglýsingu nr. 38/1998, um verkefni tollstjórans í Reykjavík á sviði innheimtumála, fól fjármálaráðherra tollstjóranum í Reykjavík að annast eftirlit með innheimtumönnum ríkissjóðs. Skal tollstjórinn í Reykjavík hafa eftirlit með því að innheimta opinberra gjalda sé í samræmi við almennar reglur og fyrirmæli, þannig að tryggt sé að samræmis sé gætt í framkvæmd, sbr. 1. mgr. 2. gr. auglýsingarinnar. Skv. 2. mgr. skal tollstjóri taka ákvarðanir um samræmdar aðgerðir innheimtumanna um allt land vegna innheimtu opinberra gjalda. Þegar innheimtuverkefni Gjaldheimtunnar í Reykjavík var flutt yfir til embættis tollstjóra var innheimtusviði embættisins sett nýtt skipurit og jafnframt því var starf forstöðumanns innheimtusviðs sett á laggirnar. Þegar í upphafi árs var hafist handa hjá embættinu við úttekt á innheimtustarfseminni og í framhaldi af því ráðist í miklar skipulagsbreytingar á fyrirkomulagi hennar.
    Í skýrslu fjármálaráðherra frá 1995 um úttekt á afskrifuðum skattskuldum kemur fram að ástæða sé til þess að athuga þann möguleika að fella erfðafjárskatt og skemmtanaskatt inn í hið almenna innheimtukerfi skatta og gjalda. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til breytinga á lögum nr. 83/1984, um erfðafjárskatt, með síðari breytingu. Samkvæmt því er lagt til að álagning og innheimta erfðafjárskatts verði flutt frá félagsmálaráðuneyti til fjármálaráðuneytis. Með gildistöku laga nr. 93/1998, um breytingu á lögum nr. 96/1995, um gjald af áfengi, voru lög nr. 58/1970, um skemmtanaskatt, afnumin.

e. Uppgjör gamalla skatta.
    Með lögum nr. 27/1997, um uppgjör á vangoldnum söluskatti, launaskatti, tekjuskatti og eignarskatti, var gjaldendum, sem voru í vanskilum með söluskatt og launaskatt, svo og tekjuskatt og eignarskatt vegna tekjuársins 1989 eða fyrri ára, veitt heimild til að gera upp þessar skuldir við ríkissjóð með greiðslu eða afhendingu skuldabréfs með þeim skilyrðum sem tilgreind eru í lögunum. Heimildin gilti til 31. desember 1997. Með setningu laganna var horft til þess að takast mætti að innheimta hluta skulda sem ekki hefðu fengist greiddar að öðrum kosti og komast þannig hjá kostnaði sem fylgt hefði árangurslausum innheimtuaðgerðum. Einkum var hér um að ræða kröfur gagnvart aðilum sem voru í gjaldþrotaskiptum, eða þrjár krónur af hverjum fjórum og fjárnám hafði verið gert fyrir fimmtungi þeirra til viðbótar. Einungir 5% voru kröfur sem komu til raunverulegrar innheimtu.

f. Gjaldþrot og búskipti
    Hjá embætti tollstjórans í Reykjavík er nú unnið að gerð verklagsreglna varðandi gjaldþrotaskipti. Skuldara er nú gefinn kostur á að komast hjá gerð frekara fjárnáms og gjaldþrotaskiptum með því að gera skriflega áætlun um greiðslu skuldar sinnar og með því að greiða inn á skuldina. Hægt er að semja um slíka greiðsluáætlun hvenær sem er eftir að árangurslaust fjárnám hefur verið gert. Ef ekki er staðið við greiðslur samkvæmt greiðsluáætlun er skuldara send áskorun bréfleiðis um að standa skil á greiðslum innan mánaðar. Ef það er ekki gert er send fjárnámsbeiðni fyrir öllum gjöldum og beðið um gjaldþrotaskipti að fjárnámi loknu.

     2.      Er ráðherra reiðubúinn til að beita sér fyrir breytingum á reglum um frádrátt af launum gjaldenda vegna ógreiddra skatta sem heimila að haldið sé eftir allt að 75% af heildarlaunagreiðslu vegna skattskulda, þannig að tekið sé tillit til aðstæðna gjaldenda, t.d. framfærslukostnaðar og greiðslubyrði?
    Í 1. mgr. 113. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, sbr. 18. gr. laga nr. 49/1987, segir m.a.: „Allir þeir, er hafa menn í þjónustu sinni og greiða laun fyrir starfa, sbr. 1. mgr. 92. gr., eru skyldir að kröfu innheimtumanns að halda eftir af kaupi launþega til lúkningar gjöldum þeirra aðila sem launþegar bera sjálfskuldarábyrgð á og innheimta ber samkvæmt ákvæðum 110. gr. Aldrei skulu launagreiðendur þó halda eftir meira en nemur 75% af heildarlaunagreiðslu hverju sinni til greiðslu á gjöldum samkvæmt lögum þessum og gjöldum samkvæmt IV. kafla laga nr. 73/1980.“ Tilgangur 1. mgr. 113. gr. er að tvinna saman hagsmuni launþega og hins opinbera á þann veg að tryggt verði sem kostur er að hið opinbera nái á tiltölulega hagkvæman hátt gjaldföllnum sköttum og gjöldum í staðgreiðslu en þó þannig að jafnframt sé tryggt að sá launþegi sem í hlut á geti framfært sér og sínum, þrátt fyrir innheimtuaðgerðir.
    Við innheimtu opinberra gjalda, sem og annarra skatta, ber innheimtumönnum ríkissjóðs að gæta jafnræðis, sbr. 11. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og 2. mgr. 111. gr. laga nr. 75/1981, en í síðastnefnda ákvæðinu segir: „Það skal vera stefna við innheimtu á tekjuskatti og eignarskatti samkvæmt lögum þessum að allir gjaldendur, sem eins stendur á um við innheimtu, vanskil og nauðungargerðir, skuli hljóta sams konar meðferð.“ Auk jafnræðisreglu verða innheimtumenn að gæta að meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 12. gr. stjórnsýslulaga en þar segir: „Stjórnvald skal því aðeins taka íþyngjandi ákvörðun þegar lögmætu markmiði, sem að er stefnt, verður ekki náð með öðru og vægara móti. Skal þess þó gætt að ekki sé farið strangar í sakirnar en nauðsyn ber til.“ Grundvallarregla þessi felur m.a. í sér að stjórnvöld verða að gæta hófs í meðferð valds síns. Stjórnvaldi ber samkvæmt þessari grundvallarreglu að fara ákveðinn meðalveg milli markmiðsins sem að er stefnt og þeirrar lagaskyldu að taka tillit til hagsmuna og réttinda einstaklinga og lögaðila sem athafnir stjórnvaldsins og valdbeiting beinist að.
    Samkvæmt því er að framan greinir ber innheimtumanni ríkissjóðs að taka tillit til aðstæðna gjaldanda, m.a framfærslukostnaðar og greiðslubyrðar viðkomandi. Á vegum ráðuneytisins er nú unnið að samningu reglugerðar um framkvæmd afdráttar launa á grundvelli 113. gr. laga nr. 75/1981 sem byggist m.a. á greinargerð og tillögum tollstjórans í Reykjavík.

     3.      Hversu oft á sl. fjórum árum hafa innheimtumenn sett fram árangurslausar gjaldþrotakröfur út af skattskuldum einstaklinga og hve hátt hlutfall eru þær af heildargjaldþrotakröfum einstaklinga?
    Ekki gafst færi á að kanna hjá öllum innheimtumönnum ríkissjóðs hversu oft óskað hefur verið eftir gjaldþrotskiptum einstaklinga á síðustu fjórum árum. Hjá tollstjóranum í Reykjavík, en það embætti innheimtir um 65% af skatttekjum ríkissjóðs, fengust eftirfarandi upplýsingar:

Tegund skiptaloka 1996 1997 1998 1999
Bú afhent þrotamanni
20 9 8 2
Eignir
2 6 7 2
Eignarlaus bú
124 178 126 69
Nauðasamningur
1 0 0 0
Ólokin mál
9 18 32 101*
Samtals
156 211 173 174
* Fjöldi ólokinna mála skýrist af því að búin hafa nýlega verið tekin til skipta.