Ferill 239. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 721  —  239. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á ábúðarlögum, nr. 64/1976, með síðari breytingum.

Frá meiri hluta landbúnaðarnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Guðmund Sigþórsson, skrifstofustjóra í landbúnaðarráðuneyti. Umsagnir bárust um málið frá Sýslumannafélagi Íslands, Búnaðarsambandi Suðurlands, Búnaðarsambandi Vestfjarða og Búnaðarsambandi Skagfirðinga. Nefndin ræddi einnig breytingartillögu frá landbúnaðarráðuneyti við 2. mgr. 4. gr. frumvarpsins ásamt greinargerð frá Stefáni Ingólfssyni verkfræðingi um mat á eignum á jörðum og matshandbók.
    Í frumvarpinu er lagt til að samræma verðmat mannvirkja og endurbóta í eigu fráfarandi ábúenda á jörðum á öllu landinu. Í því skyni er m.a. gert ráð fyrir breyttu fyrirkomulagi á skipan úttektarmanna og yfirmatsnefndar og settar viðmiðunarreglur um mat á eignum og endurbótum. Meiri hluti nefndarinnar telur nauðsynlegt að samræma vinnubrögð á þessu sviði og bendir jafnframt á mikilvægi þess að úttektarmenn hafi sérþekkingu annars vegar á mati jarða og hins vegar á mati fasteigna.
    Meiri hlutinn mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.
    Einar Oddur Kristjánsson og Sigríður Ingvarsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 9. mars 2000.



Kristinn H. Gunnarsson,


varaform., frsm.


Einar Már Sigurðarson.


Drífa Hjartardóttir.



Guðjón Guðmundsson.


Jónína Bjartmarz.


Guðmundur Árni Stefánsson.