Ferill 318. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 731 — 318. mál.
Svar
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar um innherjaviðskipti.
Ráðuneytið leitaði til Fjármálaeftirlitsins um svör við fyrirspurninni. Svarið er byggt á upplýsingum þess.
1. Hvaða tilvik um innherjaviðskipti hafa verið til meðferðar hjá Fjármálaeftirlitinu og bankaeftirliti Seðlabankans frá gildistöku laga um verðbréfaviðskipti á árinu 1996?
Frá gildistöku laga nr. 13/1996, um verðbréfaviðskipti, hefur bankaeftirlit Seðlabanka Íslands og síðar Fjármálaeftirlitið skoðað 19 mál á grundvelli IV. kafla laganna. Skipting þeirra er sem hér segir:
| Ár | Mál | |
| 1996 | 4 | |
| 1997 | 3 | |
| 1998 | 8 | |
| 1999 | 4 | * |
| * Þar af er tveimur málum ólokið. | ||
2. Hver var niðurstaða Fjármálaeftirlitsins og bankaeftirlitsins í einstökum málum og til hvað aðgerða hefur verið gripið vegna þeirra?
Af þeim meintu innherjaviðskiptum sem athuguð hafa verið og er lokið hefur niðurstaðan orðið sú að í 16 tilvikum var ekki talinn grundvöllur til aðgerða af hálfu bankaeftirlits Seðlabanka Íslands eða Fjármálaeftirlitsins. Í einu tilviki var ákveðið að vísa máli til embættis ríkissaksóknara til opinberrar rannsóknar, að lokinni athugun bankaeftirlits Seðlabanka Íslands. Athugun ríkissaksóknara leiddi ekki til opinberrar ákæru vegna umræddra viðskipta.