Ferill 459. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 735 — 459. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um barnabætur.
Frá Ögmundi Jónassyni.
Hvert hefur verið framlag ríkissjóðs til barnabóta og barnabótaauka árlega frá og með árinu 1991, sundurgreint á eftirfarandi hátt:
a. barnabætur (ótekjutengdar) sem hlutfall og í millj. kr.,
b. barnabætur (tekjutengdar) sem hlutfall og í millj. kr.,
c. barnabætur alls í millj. kr.,
d. barnabætur alls sem hlutfall af vergri landsframleiðslu,
e. barnabætur alls á föstu verðlagi, samkvæmt vísitölu?
Skriflegt svar óskast.