Ferill 375. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 737  —  375. mál.




Svar



landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar um niðurstöður starfshóps um vinnslu kaplamjólkur.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvenær og með hvaða hætti skilaði starfshópur sem ráðherra skipaði 12. janúar 1996 til að kanna möguleika á vinnslu og nýtingu kaplamjólkur niðurstöðum sínum?
     2.      Hvað hélt hópurinn marga fundi?
     3.      Hver var heildarkostnaðurinn af störfum hans?
     4.      Hverjar voru helstu niðurstöður starfshópsins?

    Starfshópurinn hefur ekki skilað formlegum niðurstöðum, en landbúnaðarráðherra var gerð grein fyrir framvindu mála og niðurstöðum á sínum tíma af formanni hópsins. Starfshópurinn hélt alls þrjá fundi en uppgjör á kostnaði hefur ekki farið fram.
    Auðvelt er að mjólka hryssur með geita-/kindamjaltatækjum, en ekki liggja fyrir ábyggilegar upplýsingar um nyt íslenskra hryssna. Tekin hafa verið kaplamjólkursýni til efnamælinga en niðurstöður eru ekki samhljóða í nokkrum veigamiklum atriðum og verulega frábrugðnar erlendum niðurstöðum. Veldur því trúlega að sýnin eru úr fáum dýrum og tekin við mismunandi aðstæður, á mismunandi tíma mjólkurskeiðs og á mismunandi árstímum.
    Í Þýskalandi er heimilt að selja kaplamjólk „við hesthúsvegg“, þ.e. beint frá framleiðanda til neytanda, en sú markaðssetning kaplamjólkur er ráðandi þar. Kannaður var möguleiki á sölu kaplamjólkur til barnamatarverksmiðju í Þýskalandi sem sýnt hafði málinu áhuga, en við nánari eftirgrennslan kom í ljós að þýskar reglugerðir heimila ekki aðra mjólk í barnamat en kúamjólk.
    Ósannað er að kaplamjólk sé betri sem ungbarnanæring en kúamjólk eða valdi síður próteinofnæmi hjá ungbörnum. Því er óraunhæft að ætla að markaðssetja mjólkina hér á landi sem ungbarnafæðu nema að undangengnum miklum rannsóknum. Ekki er hefð fyrir neyslu kaplamjólkur hér á landi og því væri öll markaðssetning kostnaðarsöm og tímafrek. Bóndi á Suðurlandi gerði tilraun til að markaðssetja kaplamjólk í Hagkaupi 1995–96, en gekk illa. Ekki var kannað hvort áhugi væri á kaplamjólk hjá snyrtivöruframleiðendum. Þeir eru fáir hér á landi og markaðurinn því lítill. Hugsanlega væri þó sóknarfæri þar.
    Þess má geta að árið 1997 var unnin ítarleg BS-ritgerð við Búvísindadeildina á Hvanneyri um kaplamjólk og nýtingu hennar. Verkið er í alla staði vel unnið og fróðleg heimild um kaplamjólk. Höfundur er Helgi Björn Ólafsson en hann starfar nú við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.
    Nauðsynlegt er að rannsaka kaplamjólk og hugsanlega nýtingu hennar betur. Athuga þarf efnainnihald mjólkurinnar, nyt hryssnanna og hugsanlega hámarksnýtingu mjólkurinnar miðað við að fráfærur séu stundaðar og að það bitni sem minnst á folöldunum. Til athugunar er að fela starfshópnum að athuga m.a. þessi atriði nánar ásamt mögulegri markaðssetningu.