Ferill 236. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 800 — 236. mál.
Frumvarp til laga
um Schengen-upplýsingakerfið á Íslandi.
(Eftir 2. umr., 22. mars.)
1. gr.
Með íslenska hluta Schengen-upplýsingakerfisins er átt við rafrænt gagnasafn sem starfrækt er hér á landi og tengt sameiginlegu upplýsingakerfi á Schengen-svæðinu.
2. gr.
Við skráningu í kerfið skal þess gætt að upplýsingar séu réttar og áreiðanlegar og að fullnægt sé skilyrðum laganna fyrir skráningu.
3. gr.
4. gr.
Við skráningu á eftirlýstum einstaklingum með beiðni um handtöku og framsal skv. a-lið 1. mgr. 6. gr. skal þess gætt að lög þess ríkis sem beiðni er beint til heimili slíkar aðgerðir.
5. gr.
a. kenninafn, eiginnafn með vísun til hugsanlegrar sérskráningar falskra nafna,
b. sérstök varanleg líkamleg einkenni,
c. fyrsta bókstaf annars eiginnafns,
d. fæðingarstað, fæðingardag og -ár,
e. kynferði,
f. ríkisfang,
g. hvort viðkomandi er vopnaður,
h. hvort viðkomandi er ofbeldishneigður,
i. ástæðu fyrir skráningu,
j. aðgerðir sem farið er fram á.
Í upplýsingakerfið má skrá upplýsingar um eftirtalda hluti:
a. vélknúin ökutæki með slagrými yfir 50 rúmsentimetrum sem hefur verið stolið, hafa verið seld ólöglega eða hafa horfið,
b. eftirvagna eða hjólhýsi með eigin þunga yfir 750 kg sem hefur verið stolið, hafa verið seld ólöglega eða hafa horfið,
c. skotvopn sem hefur verið stolið, hafa verið seld ólöglega eða hafa horfið,
d. óútfyllt skilríki sem hefur verið stolið, hafa verið seld ólöglega eða hafa horfið,
e. útgefin persónuskilríki (vegabréf, nafnskírteini, ökuskírteini) sem hefur verið stolið, hafa verið seld ólöglega eða hafa horfið,
f. peningaseðla með skráðum númerum.
6. gr.
a. vegna beiðni um að eftirlýstur maður verði handtekinn og framseldur,
b. þegar meina á útlendingi landgöngu vegna þess að:
1. hann hefur verið dæmdur hér á landi eða erlendis í fangelsi í a.m.k. eitt ár eða ætla má af öðrum ástæðum að hann muni fremja refsiverðan verknað á Schengen-svæðinu eða
2. ætla má af fyrri hegðun hans eða öðrum ástæðum að tilgangur hans með komu hingað til lands eða á Schengen-svæðið sé að fremja skemmdarverk, stunda njósnir eða ólöglega upplýsingastarfsemi eða
3. honum hefur verið vísað héðan úr landi og í gildi er bann gegn endurkomu hans til landsins,
c. vegna leitar að horfnum manni eða þegar taka á mann í gæslu tímabundið vegna eigin öryggis eða annarra,
d. vegna eftirgrennslanar um búsetu eða dvalarstað vitnis, sakbornings sem hefur verið ákærður og koma þarf fyrir dóm eða manns sem birta á dóm í opinberu máli eða boða til afplánunar fangelsisrefsingar.
Þegar upplýsingar skv. a-lið 1. mgr. hafa verið skráðar skulu eftirfarandi upplýsingar sendar því ríki sem beiðni er beint til svo fljótt sem verða má:
a. hvaða yfirvald leggur fram beiðni um handtöku,
b. hvort fyrir liggur handtökuskipun,
c. hvers konar brot um er að ræða og vísun til viðeigandi refsiákvæða,
d. málsatvik, þar með talið hvar og hvenær brot var framið og þáttur hins eftirlýsta í því,
e. eftir því sem mögulegt er, hverjar eru afleiðingar brots.
7. gr.
a. vegna rannsóknar og meðferðar opinbers máls og til að tryggja almannaöryggi þegar:
1. rökstuddur grunur leikur á að maður fremji eða muni fremja fjölda mjög alvarlegra brota,
2. heildarmat á viðkomandi manni, þar með talið á þeim brotum sem hann hefur framið, bendir til að hann muni fremja mjög alvarleg afbrot,
b. þegar ótvíræð gögn benda til að upplýsingar um dvalarstað, ferðaleið, ákvörðunarstað, fylgdarmenn eða farþega, hluti meðferðis eða við hvaða aðstæður maður eða ökutæki finnst séu nauðsynlegar til að koma í veg fyrir að alvarleg hætta stafi af viðkomandi manni eða alvarlegar ógnanir fyrir öryggi ríkisins.
8. gr.
9. gr.
Með samþykki ríkis sem skráð hefur upplýsingar verður vikið frá 1. mgr. og þær nýttar í öðrum tilgangi skv. 6.–8. gr. þegar þannig stendur á:
a. til að koma í veg fyrir alvarlega og bráða ógnun við almannaöryggi og allsherjarreglu,
b. mikilvægir öryggishagsmunir ríkisins mæla með því,
c. til að koma í veg fyrir alvarleg afbrot.
10. gr.
a. lögreglan við landamæraeftirlit og aðra löggæslu,
b. Útlendingaeftirlitið við afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritun, landgöngu- eða dvalarleyfi og til að sinna öðrum skyldum samkvæmt lögum um eftirlit með útlendingum að því marki sem nauðsynlegt er til að bregðast við upplýsingum sem skráðar eru á grundvelli b-liðar 1. mgr. 6. gr.
Til að starfa við upplýsingakerfið verður viðkomandi starfsmaður að fá sérstaka heimild ríkislögreglustjóra, enda fullnægi hann settum hæfis- og öryggiskröfum. Viðkomandi starfsmaður skal einungis hafa þann aðgang að kerfinu sem honum er nauðsynlegur til að gegna starfi sínu.
11. gr.
a. tollgæslan við eftirlit á landamærum og þegar hún annast eða aðstoðar við löggæslu,
b. Landhelgisgæslan þegar hún annast eða aðstoðar við löggæslu,
c. dómsmálaráðuneytið við beitingu heimilda sem æðra stjórnvald.
12. gr.
13. gr.
Réttur hins skráða til að fá vitneskju skv. 1. mgr. er ekki fyrir hendi ef nauðsynlegt er að halda upplýsingunum leyndum til að ná því markmiði sem stefnt er að með skráningu eða vegna hagsmuna annarra. Þegar eftirlit með leynd skv. 7. gr. stendur yfir á hinn skráði ekki rétt á að fá vitneskju um skráðar upplýsingar.
Nú er óskað eftir vitneskju um upplýsingar sem skráðar eru af öðru ríki og skal þá gefa því kost á að gera athugasemdir áður en fallist er á þá beiðni.
14. gr.
Nú hafa upplýsingar sem um ræðir í 1. mgr. verið skráðar í upplýsingakerfið af öðru ríki og skal þá ríkislögreglustjóri án ástæðulauss dráttar tilkynna því um annmarka á skráningu með ósk um viðeigandi breytingar.
15. gr.
16. gr.
Greiða á bætur þótt upplýsingar hafi verið skráðar í öðru ríki ef þær hafa verið notaðar hér á landi. Bætur skal greiða án tillits til sakar, en þær má þó fella niður eða lækka ef tjónþoli hefur sjálfur stuðlað að því að upplýsingar væru skráðar eða notaðar.
Bótakrafa fyrnist á tveimur árum frá því að tjónþoli fékk vitneskju um skráningu í upplýsingakerfið.
17. gr.
Endurmeta skal nauðsyn skráningar í upplýsingakerfið sem hér segir:
a. upplýsingar um einstaklinga skv. 6. gr. innan þriggja ára frá skráningu,
b. upplýsingar um einstaklinga og ökutæki skv. 7. gr. innan eins árs frá skráningu.
Þegar tekin er ákvörðun um að skráning upplýsinga skuli standa í upplýsingakerfinu gildir 2. mgr. um endurmat skráningar á ný.
Upplýsingar sem skráðar eru skv. 8. gr. skulu ekki standa lengur frá skráningu í upplýsingakerfið en hér greinir:
a. upplýsingar um útgefin persónuskilríki og peningaseðla með skráðum númerum eigi lengur en fimm ár,
b. upplýsingar um ökutæki, eftirvagna eða hjólhýsi eigi lengur en þrjú ár,
c. aðrar upplýsingar eigi lengur en tíu ár.
18. gr.
Tölvunefnd hefur aðgang að skráðum upplýsingum og öðrum nauðsynlegum gögnum til að sinna eftirliti með upplýsingakerfinu skv. 1. mgr.
Nú gerir tölvunefnd athugasemdir við starfrækslu upplýsingakerfisins og skal hún þá koma þeim og tillögum um úrbætur á framfæri við ríkislögreglustjóra og dómsmálaráðuneytið.
19. gr.
a. öryggisþætti upplýsingakerfisins og innra eftirlit með því, sbr. 3. gr.,
b. hæfis- og öryggiskröfur sem starfsmenn lögreglu eða Útlendingaeftirlits verða að fullnægja til að starfa við upplýsingakerfið, sbr. 2. mgr. 10. gr.,
c. eftirlit tölvunefndar með upplýsingakerfinu, sbr. 18. gr.
20. gr.