Ferill 516. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 815  —  516. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um lækkun lyfjaútgjalda Tryggingastofnunar ríkisins.

Frá Sighvati Björgvinssyni og Ögmundi Jónassyni.



     1.      Mun ráðherra krefjast þess að staðið verði við markmið fjárlaga fyrir árið 2000 um 1.000 millj. kr. lækkun lyfjaútgjalda Tryggingastofnunar ríkisins?
     2.      Mun ráðherra krefjast þess að því markmiði verði náð með því að hækka greiðsluhlutdeild sjúklinga, þar sem engin breyting hefur enn verið gerð á fyrirkomulagi lyfsölu, verðlagningu lyfja eða innkaupum sem líkleg er til að skila slíkum sparnaði?