Ferill 453. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 899 — 453. mál.
Svar
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Margrétar K. Sverrisdóttur um reglur um innherjaviðskipti og dreifða eignaraðild.
1. Hvað líður setningu reglna um innherjaviðskipti?
Um viðskipti innherja er fjallað í IV. kafla laga um verðbréfaviðskipti, nr. 13/1996, og í II. kafla reglna Verðbréfaþings Íslands um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa. Lagakaflinn um meðferð trúnaðarupplýsinga er byggður á tilskipun ESB þar að lútandi og dönskum lögum. Breytingar á þessum ákvæðum eru vandasamar og þarfnast mikillar yfirlegu. Brýnt er að fylgjast grannt með vinnu nágrannaríkja okkar á þessu sviði en í mörgum þeirra er um þessar mundir verið að vinna að endurbótum á reglum um innherjaviðskipti.
Hér á landi er ýmislegt hægt að gera til að draga úr líkum á innherjasvikum. Má þar t.d. nefna að Verðbréfaþing Íslands hefur ákveðið að taka upp nafnbirtingu innherja sem eiga viðskipti með bréf frá 1. júlí næstkomandi. Þá hefur Verðbréfaþingið áhuga á að auka tíðni uppgjöra, t.d. taka upp ársfjórðungsuppgjör, sem einnig dregur úr líkum á innherjasvikum.
Að höfðu samráði við Verðbréfaþing og Fjármálaeftirlitið telur ráðuneytið að vel komi til greina að leggja til við Alþingi að heimilt verði að setja reglugerð um innherjaviðskipti á grundvelli IV. kafla laga um verðbréfaviðskipti í því skyni að skerpa frekar á ákvæðum um fruminnherja. Í slíkri reglugerð væri hægt að setja nánari reglur um framkvæmd viðskipta innherja, t.d. um takmarkanir á viðskiptum, tilkynningu um viðskipti og birtingu þeirra og tilgreiningu innherja og birtingu lista yfir þá.
2. Hvað líður setningu reglna um dreifða eignaraðild að bönkum og fjármálastofnunum?
Engin vinna er í gangi við setningu reglna um dreifða eignaraðild. Við stefnumótun um sölu á þeim bönkum sem enn eru í meirihlutaeigu ríkisins verður höfð hliðsjón af reynslu þeirra ríkja þar sem takmarkanir af einhverju tagi eru settar á eignarhald að fjármálafyrirtækjum.