Ferill 599. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 913  —  599. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um greiðslur til hjúkrunarheimila.

Frá Ástu Möller.



     1.      Hverjar voru heildargreiðslur til reksturs hjúkrunarheimila/hjúkrunarrýma vegna aldraðra hjúkrunarsjúklinga árin 1998 og 1999 samkvæmt daggjöldum/föstum fjárlögum?
     2.      Hverjar voru heildargreiðslur vegna vasapeninga aldraðra á hjúkrunarheimilum/hjúkrunarrýmum 1998 og 1999?
     3.      Hvað greiddu aldraðir á hjúkrunarheimilum/hjúkrunarrýmum samkvæmt reglugerð nr. 47/1990 árin 1998 og 1999?
     4.      Hverjar eru heildargreiðslur vegna dvalarheimilisuppbótar aldraðra árin 1998 og 1999?


Skriflegt svar óskast.